Húslestur 16.08.2021

1.tbl. 32.árg. mánudagurinn 16. ágúst 2021. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Velkomin til starfa!

Húslestur hefur ýmsar gagnlegar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang eða á heimasíðu skólans fsh.is.

Þá er einnig mikilvægt að þið líkið við síðu Framhaldsskólans á Húsavík á facebook.

Skrifstofa skólans opnaði kl. 8:10 fimmtudaginn. 12. ágúst

Framhaldsskólinn á Húsavík verður settur á sal miðvikudaginn 18.08.2021 klukkan 12:30, í kjölfarið sækja nemendur örtíma. Athugið að kennsla hefst samkvæmt stundatöflu klukkan 08:10 fimmtudaginn 19.08.2021. Stundatöflu nemenda er að finna á Innu. Það er mjög mikilvægt að nemendur séu meðvitaðir um eigin ábyrgð þegar kemur að smitvörnum.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 27.september-1.október, stefnt er að skólafundi á önninni nánari tímasetning auglýst síðar. Próf verða frá 6. til 15. desember og önninni lýkur með prófsýningu 17. desember.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8-16 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Guðrún Reynisdóttir.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Aðalgeir Sævar Sigurgeirsson. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á haustönn 2021

Auður Jónasdóttir Starfsbraut.
Ásta Svavarsdóttir Íslenska.
Björgvin Friðbjarnarson Efnafræði; líffræði
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Gunnar Baldursson Jarðfræði og efnafræði.
Halla Rún Tryggvadóttir Danska
Knútur Arnar Hilmarsson Stærðfræði.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Sálfræði; Stærðfræði og lífsleikni.
Sigurður Narfi Rúnarsson Rafíþróttir og starfsbraut.
Smári Sigurðsson Enska; þýska
Valdimar Stefánsson Saga; heimspeki.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Efnisyfirlit.

1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Örtímatafla
7. Íþróttir
8. Kennsluvefur
9. Heilsunudd
10. Aðrar upplýsingar