HÖNN2FÖ05(12) - Hugur og hönnun II

Forritun og örtölvur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Gott er að hafa tekið áfangann HÖNN1HH05 (11) á undan en það er þó ekki nauðsynlegt.
Í áfanganum læra nemendur um tölvustýrða tækni og samskiptaferlið milli tölvu og framleiðslutækja á borð við vatns- og laserskurðarvéla, fræsara og þrívíddarprentara. Nemendur læra grunnatriði í forritun og gera tilraunir með notkun örtölva og þau forrit sem stýra þeim. Skoðuð eru fyrirtæki sem nýta sér tölvutækni við framleiðslu sína og starfsemi, allt frá framleiðslufyrirtækjum yfir í tölvuleiki. Í lok áfangans vinna nemendur verkefni sem felst í að hanna og útbúa hlut með ákveðna virkni sem stýrt er af örtölvu. Nemendur kynna verkefnið fyrir öðrum og huga að markaðssetningu í tengslum við frekari þróun. Áhersla er lögð á endurnýtingu á efnum og farið er yfir þau áhrif sem framleiðsla almennt hefur á náttúrulegar auðlindir og samfélagið.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum forritunar
  • grunnatriðum stýrirása
  • hvernig hægt er að nýta tækni og skapandi hugsun til að þróa hugmynd í átt að áþreifanlegum hlut.

Leikniviðmið

  • vinna með örtölvur og aðra tölvustýrða tækni
  • beita aðferðum sem hjálpa honum að takast á við nám eða vinnu í nýskapandi umhverfi
  • kynna hugmyndir og verkefni fyrir öðrum.

Hæfnisviðmið

  • þróa hlut/vöru með hagnýtt gildi
  • gera sér grein fyrir mikilvægi sjálfbærni í hönnun og framleiðslu
Nánari upplýsingar á námskrá.is