Glærur
1. Stundum gerist það að Powerpoint skjöl með endingunni pptx opnast ekki rétt í glæruforritinu Impress í OO.
Þetta lýsti sér þannig að "glærurnar" voru ólæsilegar, næstum hvítt letur á
hvítum bakgrunni.....
Við nánari athugun var málið ekki beint skráartengt, vandamálið var til staðar
bæði þegar upphaflega skjalið var PPTX (MS office 2007) og PPT (MS office 2003)
Impress opnaði skjölin, en klúðraði bakgrunni og textalit.
Með því að skipta um "Master Page" í Impress, var mjög auðvelt að gera "glærurnar"
nothæfar aftur.
Til að skipta um "Master page" verður Tasks panellinn að vera virkur (til hægri við
aðal vinnusvæðið). Velja View->Task Pane af menu bar, ef ekki er þegar hakað við það.
Í Tasks (enn til hægri) klikkar maður á "Master Pages" og velur svo eitthvað sætt.







