Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Að opna OpenOffice skrár

 

Fram til vors 2009 var Microsoft Office (MSO) hugbúnaður ríkjandi hér í FSH.

Þá var ákveðið að hætta með MS Office og taka upp OpenOffice.org (OO) í staðinn.


OpenOffice er að nota OpenDocumentFormat (ODF) skráarform. ODF er samkvæmt alþjóðlegum

ISO staðli og helstu Office pakkar sem við þekkjum til geta lesið og skrifað ODF skár.

Helstu skráaendingar í ODF (en ekki allar) eru:

odt      texti (text)                    opnast í OO writer eða MSO word

ods      tafla (spreadsheet)       opnast í OO calc eða MSO excel

odp      glærur (presentation)   opnast í OO impress eða MSO powerpoint


Ef þeir sem nota MS Office geta ekki opnað ODF skrár, þá er MS office útgáfan á vélinni ekki nógu ný.

Á windows vélum með MSO 2007 verður að uppfæra MS Office 2007 í "Service Pack 2" (SP2)

SP2 fyrir MSO kostar ekkert. Hann er hægt að nálgast hér:

http://office.microsoft.com/en-us/downloads

Velja svo linkinn "Office 2007 Service Pack 2"

Makkanotendur með MSO 2008 geta líka uppfært MSO þannig að hann lesi ODF skjöl.

Þó svo að MSO geti opnað OO skjöl og OO geti opnað MSO skjöl, þá getur verið

munur á grafískri framsetningu. Það er ekki hægt að treysta því að skjal sem

búið er til í öðrum Office pakkanum, líti eins út í hinum.

Þar sem skólinn hefur skipt yfir í OpenOffice, þá er mælt með að ná sér í þann Office pakka.

Hægt er ná sér ókeypis í OpenOffice hér:

http://www.openoffice.org/

Ef MSO er uppsett á tölvunni þegar OO er sett upp, þá opnar OO ekki sjálfkrafa

MSO skrár. Ef á að skipta alveg úr MSO yfir í OO, þá er best að fjarlæga MSO áður en

OO er settur upp.

Ef á nota báða office pakkana saman, þá er það alveg hægt, en ef skráin

sem vinna á með opnast ekki sjálfkrafa í því forriti sem ætlast var til, þá

þarf fyrst að opna það forrit og opna svo skjalið þaðan.


Staðsetning:

Forsíða > Þjónusta > Tölvur > Um OpenOffice > Að opna OpenOffice skrár

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH