Tölvur
Netaðgangur nemenda
Eldri nemar halda sínum netföngum en nýnemar fá netföng á skrifstofu skólans. Lykilorð allra nýrra netfanga er 12345 og þurfa nemendur sjálfir að breyta sínu lykilorði. Það er gert á eftirfarandi hátt:
Farið er inn á netfanginu og lykilorðinu 12345 (til að fá upp valmyndina er slegið á control-alt-delete). Þegar ræsingu er lokið er aftur slegið á control-alt-delete og kemur þá upp valmynd þar sem meðal annars er hægt að breyta lykilorði. Gamla lykilorðið (12345) er slegið inn og svo nýja lykilorðið tvisvar. Ekki má nota íslenska sérstafi í lykilorði.
Þegar tölvunotkun er hætt er farið gegnum startup-shutdown og og valið logoff í valmyndinni. Alls ekki velja lock!
Ekki er ætlast til að slökkt sé á tölvunum að notkun lokinni.
Verði nemendur uppvísir að misnotkun á tölvukerfi skólans verður aðgangurinn tekinn af þeim.
Tölvustofa
Opnunartímar stofu 1 eru þegar hún er ekki í notkun skv. töflu (sjá auglýsingu við stofudyrnar). Kennarar með hópa hafa þó forgang á opnunartímum fram yfir aðra.
Fartölvur nemenda
Nemendur hafi samband við kerfisstjóra til að fá aðgang að þráðlausa netinu. Bent er á að vera með nýjustu uppfærslur af stýrikerfum sama hver þau eru.







