Persónuleg ráðgjöf
Persónuleg ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum þeirra ýmiss konar aðstoð og stuðning til þess að nemendur eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi sínu.
Persónuleg mál nemenda geta verið af ýmsum toga s.s. félagsleg, námsleg, tilfinningaleg eða tengd samskiptum. Námsráðgjafinn aðstoðar nemendur við að leita lausna og veitir þeim stuðning.
Námsráðgjafinn er bundin þagnarskyldu varðandi þær upplýsingar sem honum er trúað fyrir í starfi sínu.Námsráðgjafinn getur aðeins rætt trúnaðarmál við aðra hafi nemandi veitt samþykki fyrir því eða ef námsráðgjafinn telur að líf og heilsa nemandans sé í húfi.







