Áhugasviðskönnun
Nemendum við FSH gefst kostur á að taka áhugasviðskönnun en þeir þurfa að greiða útlagðan kostnað vegna hennar. Þeir nemendur sem óska eftir að taka slíka könnun þurfa hafa samband við námsráðgjafa.
Þær kannanir sem í boði eru:
Í leit að starfi: Þetta er erlend áhugasviðskönnun sem hefur verið þýdd og staðfærð á íslensku. Hún er á pappírsformi og tekur um 30-40 mínútur að svara henni. Unnið er síðan úr henni hjá náms- og starfsráðgjafa.
Bendill 11: Þetta er íslensk áhugasviðskönnun sem svarað er rafrænt hjá náms- og starfsráðgjafa. Það tekur um 30-40 mínútur að svara henni og niðurstöður koma strax fram. Unnið er síðan úr henni hjá náms- og starfsráðgjafa.







