Matur fyrir nemendur FSH
Nemendur FSH geta keypt hádegismat á Fosshótel Húsavík.
Seldir verða matarmiðar sem gilda annars vegar fyrir haustönn og hins vegar fyrir vorönn.
Verð á matarmiðum er sem hér segir:
10 miðar kosta kr. 6.000 (600 kr. máltíðin). Stök máltíð kostar 900 kr.
Miðarnir verða seldir á hótelinu og gilda fyrir þær máltíðir sem nemendur kjósa, ekki þarf að panta mat fyrir fram fyrst um sinn. Hægt er að hafa samband í netfangið jona@fosshotel.is og fá matseðla senda heim með tölvupósti.
Terían verður opin á matartíma frá kl. 12:25 til 13:00. Nemendur afhenda matarmiða í móttöku hótelsins þegar þeir koma í mat.







