Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Kynning á bókasafni

Bókasafnið þjónar fyrst og fremst nemendum, kennurum og starfsfólki  Framhaldsskólans á Húsavík.

Safnkostur:  Á safninu er að finna bækur, tímarit, myndbönd, DVD diska og fleiri gögn, sem aðallega tengjast námsgreinum  skólans eða   snerta starfsemi hans á einhvern hátt.  Skráðar hafa verið rúmlega 4600 bækur og annað efni. 

Tölvuskrá:   Allt efni safnsins er tölvuskráð og nú er hægt að finna stærstan hluta safnkostsins í Gegni.is, sem er samskrá íslenskra bókasafna á vefnum. Í Gegni.is er meðal annars hægt að sjá hvort ákveðin bók sé til í bókasafni FSH og hvort hún sé í láni eða staðsett í hillu.

Ţað kostar ekkert að taka bækur eða annað efni  að láni og  nemendur þurfa engin bókasafnskortŢað eina sem þarf að gera er að gefa upp kennitölu hjá bókaverði, þegar bók eða önnur gögn eru tekin að láni.  

Öll útlán þarf að tölvuskrá.

Ef starfsmaður er ekki við þegar taka á bók að láni er viðkomandi  vinsamlega beðinn um að  skrifa nafn sitt  og kennitölu á  þar til gerða miða  sem staðsettir eru á afgreiðsluborði  og  einnig nafn höfundar og bókar eða  númerið á  strikamiðanum  sem er aftan á bókinni ( merktur  bókasafni Framhaldsskólans á Húsavík), og skilja  miðann eftir á borði bókavarðar. 

Útlánatími er  eftir samkomulagi við bókavörð. Flestar bækur og annað safnefni er lánað út, en kennslubækur og orðabækur eru þó aðeins lánaðar einn dag í einu  eða yfir helgi.  Handbækur sem mest eru notaðar  eru  aðeins lánaðar innan skólans.

Aðstaða:  Á bókasafninu eru sæti fyrir 19 manns.  Þar eru staðsettar  3  tölvur fyrir nemendur,  litaprentari og myndriti (skanner).Prentarinn sem nemendur hafa aðgang að er staðsettur fyrir framan dyr bókasafnsins og heitir fsh.vax_bokasafn. Hann þarf að velja sérstaklega þegar prentað er út.  Ljósritunarvél  sem nemendur hafa aðgang að er þar staðsett.

Heimildaleit:  Bókasafnsfræðingur leiðbeinir notendum um safnið og aðstoðar við heimildaleit vegna verkefna og ritgerða.

                                          

Á heimasíðu bókasafnsins  (www.fsh.is) eru ýmsir tenglar í  alfræðirit, gagnasöfn og vefsíður sem geta komið sér vel við ritgerðavinnu og við námið almennt.  Á bókasafninu geta nemendur líka leitað í gagnasafni Morgunblaðsins, en sérstakt lykilorð þarf til að skoða síðustu þrjá árganga Moggans (bókavörður er með lykilorð).


                                                  

Millisafnalán:  Góð þjónusta er aðalmarkmiðið.  Ef tiltekið rit eða efni er ekki að finna í eigu bókasafnsins, er lögð áhersla á að útvega það í millisafnaláni eða á annan hátt fyrir notendur safnsins. Á sama hátt fá aðilar utan skólans bækur og annað efni að láni hjá bókasafni FSH, eftir því sem tök eru á.

                                                    
Neysla matar og drykkjar er  algjörlega bönnuð við tölvurnar.


Stađsetning:

Forsíđa > Ţjónusta > Bókasafn > Kynning á bókasafni

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH