Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Þjónusta

Á skrifstofu skólans fer fram öll almenn afgreiðsla, þar starfa skólafulltrúi og fjármálastjóri skólans. Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga frá kl. 8:00 til 13:00. 
Bókasafn skólans er opið nemendum mánudaga til fimmtudaga frá 8:00 til 16:00 og á föstudögum til kl. 14. 
Bókasafnsfræðingur veitir safninu forstöðu og annast bókakaup. Flestar bækur eru til útláns, en ýmsar handbækur eru aðeins lánaðar á lesstofu.

Mötuneyti nemenda er í kjallara skólans, þar selja þeir léttar veitingar í  frímínútum og í hádegishléi.

Skiptibókamarkaður er starfræktur í upphafi hverrar annar í kjallara skólans. Þar er einnig  eitthvað af nýjum bókum til sölu svo og ljósritað efni frá kennurum.

Sveitarstjórn Norðurþings hefur samþykkt eftirfarandi reglur um styrki til nemenda sem búsettir eru í Norðurþingi utan Húsavíkur og stunda nám við Framhaldsskólann á Húsavík. sjá hér


Staðsetning:

Forsíða > Þjónusta

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH