Starfsmannastefna
Í starfsmannastefnu sinni leggur FSH áherslu á:
- Úrvalsþjónustu við nemendur
- Áræði, frumkvæði og kraft
- Öryggi, trúnað og heilindi
- Árangur á öllum sviðum
Ráðningar og starfskjör
FSH keppir að því að ráða, halda í og efla hæft og traust starfsfólk. Ráðningar skulu byggja á faglegum forsendum með áherslu á þekkingu og reynslu, hæfni í samskiptum og frumkvæði og kappkostað að ráða hverju sinni þann sem hæfastur er talinn um leið og jafnréttis er gætt á öllum sviðum. Nýliða skal setja vel inn í störf sín og mikilvægt er að starfsmenn séu tilbúnir að miðla reynslu sinni og þekkingu til nýrra starfsmanna svo aðlögun þeirra verði sem best. Starfskjör ráðast af kjarasamningum og stofnanasamningi þar sem leitast skal við að taka tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs við ákvörðun launa.
Samskipti og samvinna
FSH leggur mikið upp úr starfsánægju, góðum starfsanda og vellíðan starfsmanna. Lögð er áhersla á að starfsmenn sýni nemendum og hver öðrum virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót. Samvinna og samskipti eiga að einkennast af skilningi og trausti og áhersla er lögð á opin skoðanaskipti og góða miðlun upplýsinga. Starfsmenn skulu hafa gott svigrúm til athafna og ákvarðana.
Símenntun og starfsþróun
FSH leggur áherslu á að starfsmönnum bjóðist fjölbreyttir möguleikar til fræðslu og starfsþróunar, bæði innan skólans og utan. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanns og stofnunar að viðhalda og bæta fagþekkingu og aðra sérþekkingu sem nauðsynleg er starfsins vegna. Árleg starfsmannaviðtöl eiga að
Jafnrétti
FSH lýsir því yfir að öll starfsemi skólans skal taka mið af jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan skólans. Auk þess skulu allir eiga sömu möguleika á að njóta eigin verðleika og þroska hæfileika sína án tillits til aldurs, kynþáttar, kynhneigðar og stjórnmála- eða trúarskoðana sinna.
Jafnréttis skal gæta m.a. við ákvörðun launa og annarra fríðinda, ráðningu og uppsögn úr starfi, stöðuhækkun og tilfærslu í starfi, vinnuaðstæður og vinnuhlunnindi.
Einelti og kynferðisleg áreitni eru alvarleg brot í starfi og verða ekki liðin.
Stefnumótun
FSH vill að starfsmenn eigi kost á að koma hugmyndum sínum um stefnu og áherslur skólans á framfæri með málefnalegri umræðu og gagnrýni.
Starfsumhverfi og heilbrigði.
Öruggt starfsumhverfi og góður aðbúnaður á vinnustað er forsenda fyrir góðri líðan og árangursríku starfi. FSH vill tryggja sem best að slíkar aðstæður séu ávallt fyrir hendi og að starfsmenn hafi góðan aðgang að vönduðum tækjum og tólum til að geta sinnt störfum sínum sem best. Flestir starfsmenn sinna verkstjórn og því er afar mikilvægt að fjarvistir frá vinnu séu sem minnstar. Þess vegna styrkir FSH starfsmenn sína til líkamsræktar og heilsueflingar. Ábyrgð á heilsu og vellíðan er sameiginlegt verkefni og mikilvægt að bæði skóli og starfsmaður taki fullan þátt í því.
Ábyrgð og skyldur
FSH leggur áherslu á að stjórnendur vinni að því að útfæra stefnu og markmið skólans og geri starfsmönnum kleift að taka framförum í störfum sínum og einkalífi með hvatningu og virku upplýsingastreymi. Allir séu metnir að verðleikum, njóti skilnings og virðingar. Stjórnendur bera ábyrgð á störfum starfsmanna og starfslýsingum. Þeir skulu leitast við að hafa samráð við þá um stefnumótun skólans og að leysa ágreining sem upp kann að koma. Starfsmenn FSH skulu rækja störf sín af alúð og samviskusemi. Þeir skulu forðast að að aðhafast nokkuð það í starfi sínu eða utan þess sem þeim er til vanvirðu eða álitshnekkis og varpað getur rýrð á starfgreinina eða stofnunina. Starfsmönnum ber að fara eftir stjórnsýslulögum og siðareglum skólans eins og þær birtast í skólanámskrá.
Starf og einkalíf.
FSH vill koma til móts við starfsmenn við að samræma starfsskyldur og fjölskylduábyrgð. Reynt skal af fremsta megni að koma til móts við óskir starfsmanna vegna fæðingarorlofs, umönnunar barna eða veikinda í fjölskyldu, t.d. með minni yfirvinnu, hlutastörfum eða sveigjanlegum vinnutíma. Komi upp vandamál hjá starfsmanni eða á milli starfsmanna ber að taka strax á því og greiða úr með skilning og umhyggju að leiðarljósi.
Tilfærslur í starfi og starfslok
Þegar breytingar verða á störfum með auknum kröfum, ný störf verða til og önnur lögð niður, vill FSH skapa möguleika á samfelldum starfsferli með því að hvetja starfsmenn til að afla sér viðbótarmenntunar og hæfni til að takast á við ný verkefni. Við ákvörðun um starfslok skal fara eftir þeim lögum og reglugerðum sem í gildi eru hverju sinni. Uppsagnir starfsmanna skulu byggðar á frammistöðu og reynslu. Við starfslok vegna aldurs leitast skólinn við að finna farsælar lausnir í samráði við viðkomandi starfsmann, báðum aðilum til hagsbóta







