Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Starfslýsingar

Starfslýsingar við Framhaldsskólann á Húsavík

Starfslýsingar FSH eru byggðar á reglugerð um starfslið og skipulag framhaldsskóla nr. 5/2001  og eru teknar til endurskoðunar þegar breytingar verða á reglugerðinni og þegar aðrar breytingar á starfsháttum og starfaskipulagi skólans gefa tilefni til þess.

Skólameistari

Skólameistari skal m.a.:

  1. bera ábyrgð á starfsemi skólans, menntunar- og uppeldishlutverki, þróunarstarfi innan hans, gerð skólanámskrár og innritun nemenda,
  2. bera ábyrgð á eignum, fjárreiðum og öðrum rekstri skólans,
  3. vinna með skólanefnd að gerð fjárhags- og starfsáætlana til lengri og skemmri tíma og sjá til þess að þeim sé framfylgt,
  4. sjá um að lögum, reglugerðum og námskrá sé framfylgt,
  5. ráða, að höfðu samráði við skólanefnd, starfsfólk skóla eftir því sem gildandi lög segja til um og skipta með þeim verkum,
  6. hafa yfirumsjón með starfi kennara og annarra starfsmanna skólans og fylgjast með því að þeir ræki skyldur sínar og njóti þeirra réttinda sem þeim ber,
  7. sjá til þess að fylgst sé með því að nemendur stundi nám sitt, hlíti þeim reglum sem settar eru og njóti þeirra réttinda sem þeim ber,
  8. taka afstöðu til og úrskurða um álitamál vegna innra starfs og starfstíma skólans,
  9. sjá um tengsl skólans út á við, m.a. við aðstandendur nemenda, aðra skóla og aðila á öðrum sviðum atvinnulífsins,
  10. vera framkvæmdastjóri skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt,
  11. kalla saman kennarafundi,
  12. bera ábyrgð á innra mati á starfi skólans,
  13. bera ábyrgð á að starfsemi skólans sé kynnt,
  14. sjá til þess að fyrir liggi upplýsingar um skólastarfið og að nauðsynlegar skýrslur um það séu gerðar.

Skólameistari ber ábyrgð á að upplýsa forráðamenn ólögráðra nemenda um námsástundun, námsgengi og önnur atriði er varða skólavist nemandans og velferð hans.

 

Aðstoðarskólameistari:

Er staðgengill skólameistara og vinnur með honum við daglega stjórn skólans og rekstur. Hann: 

  1. hefur umsjón með kennslu, innra mati og gæðastjórnun,
  2. hefur umsjón með húsnæði skólans og viðhaldi þess í samvinnu við húsvörð,
  3. hefur umsjón með eignum samkvæmt eignaskrá og viðhaldi þeirra,
  4. er formaður skólaráðs,
  5. hefur yfirumsjón með innkaupum fyrir skólann,
  6. sér um skýrslugerð um skólastarfið.
  7. fer yfir og samþykkir viðskiptakröfur til skólans,
  8. tekur þátt í gerð skólanámskrár og þróunarstarfi skólans,
  9. vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Áfangastjóri

Áfangastjóri skal m.a.:

  1. hafa umsjón með rekstri áfangakerfis við skólann,
  2. sjá um skráningu upplýsinga um nemendur er innritast í skólann, færslu námsferilsskrár og miðlun slíkra upplýsinga,
  3. hafa umsjón með fjarvistarskráningu,
  4. hafa yfirumsjón með námsvali nemenda í samráði við námsráðgjafa skólans og umsjónarkennara,
  5. hafa umsjón með gerð stundaskrár, prófstjórn og úrvinnslu einkunna,
  6. ritstýra gerð skólanámskrár og uppfæra á vef skólans,
  7. ritstýra Húslestri, fréttablaði skólans,
  8. taka þátt í innra mati og þróunarstarfi skólans,
  9. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Kennarar

Kennari skal m.a.:

  1. kenna og undirbúa kennslu, hafa faglegt samstarf og meta nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og skólanámskrár,
  2. gera kennsluáætlanir og prófa í samráði við aðra kennara,
  3. viðhalda faglegri hæfni sinni og huga að tengslum við aðrar námsgreinar,
  4. skrá fjarvistir nemenda sinna,
  5. taka þátt í  samstarfi vegna starfs síns,
  6. bera ábyrgð á almennri upplýsingagjöf og upplýsingagjöf vegna sjálfsmats skóla og skólanámskrár,
  7. hafa tiltekinn viðtalstíma fyrir nemendur, forráðamenn og vegna upplýsingagjafar,
  8. sitja a.m.k. einn fund á ári/önn með forráðamönnum ólögráða nemenda,
  9. sitja kennarafundi sem boðaðir eru skv. reglugerð um kennarafundi,
  10. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

 

Námsráðgjafi

Námsráðgjafi veitir nemendum leiðsögn í persónulegum málum sem snerta námið og skólann. Námsráðgjafi metur hvort unnt sé að leysa úr málum innan skólans eða hvort leita þarf eftir sérhæfðari meðferð til viðeigandi sérfræðinga eða stofnana. Hann kemur upplýsingum þar um til skólameistara. Fara skal með vitneskju sem námsráðgjafi öðlast um persónuleg mál einstaklinga sem trúnaðarmál.

Námsráðgjafi skal m.a.:

  1. skipuleggja og sjá um framkvæmd náms- og starfsfræðslu í skólanum,
  2. annast ráðgjöf um náms- og starfsval,
  3. kynna skólann og þjónustu hans í grunnskólum héraðsins,
  4. taka þátt í að skipuleggja ýmsar aðgerðir til að stuðla að betri líðan nemenda í skólanum,
  5. fylgjast með námsgengi nemenda sem til hans leita eða til hans er vísað og gera tillögur til úrbóta gerist þess þörf,
  6. liðsinna kennurum vegna námsvanda einstakra nemenda og vera þeim til aðstoðar við skipulagningu og umsjón með nemendahópum,
  7. hafa samband við forráðamenn nemenda þegar þörf er á,
  8. fylgjast með nýjungum á sviði námsráðgjafar,
  9. sitja í forvarnarteymi skólans með forvarnarfulltrúa og félagsmálafulltrúa
  10. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum,
  11. taka saman skýrslu um starfsemina í lok hvers skólaárs.

 

Netstjóri

Netstjóri er umsjónarmaður upplýsingakerfa FSH og ber ábyrgð á þeim. Hann ber ábyrgð á skráningu alls tölvubúnaðar skólans. Hann skal m.a.

  1. sjá um daglegan rekstur og eftirlit með tölvubúnaði og netkerfi skólans,
  2. vinna að viðhaldi á vélbúnaði og hugbúnaði í eigu skólans,
  3. sjá um skipulagningu og þróun netkerfis og fylgjast með nýjungum á sviði tölvutækni og hugbúnaðar,
  4. sinna ráðgjöf og fræðslu fyrir starfsfólk og nemendur,
  5. gera tillögur til stjórnenda um val á vélbúnaði og hugbúnaði,
  6. tryggja sem best öryggi upplýsingakerfisins með vírusvörnum og reglulegri afritun gagna,
  7. setja reglur og skipuleggja eftirlit með tölvunotkun og umgengni í tölvustofu,
  8.  vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningi,
  9. gera árlega skýrslu sem lýsir stöðu allra þátta verksviðs hans. Þar skal koma fram fjárþörf vegna endurnýjunar og viðhalds upplýsingakerfa næsta skólaár.

 

Fjármálastjóri

Fjármálastjóri hefur umsjón með fjármálum og rekstri skólans, svo og fjármálum mötuneytis og sérstakra sjóða innan skólans.  Hann sér um innheimtu og greiðslu gjalda, bókhald og reikningsuppgjör.

Fjármálastjóri skal m.a.

  1. færa bókhald skólans í samræmi við fyrirmæli og reglur,
  2. færa bókhald sérstakra sjóða innan skólans,
  3. hafa umsjón með og bera ábyrgð á bókhaldi nemendafélags skólans,
  4. gera árlega rekstraráætlun í samvinnu við skólameistara,
  5. sjá um innheimtu og greiðslu á viðskiptakröfum,
  6. sjá um skráningu launa og útprentun á launalistum
  7. tölvuskrá eignir skólans í eignaskrá í samráði við aðstoðarskólameistara
  8. sjá um árlegt reikningsuppgjör
  9. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum 

 

Yfirmaður skólasafns

Yfirmaður skólasafns skal m.a.:

  1. gera áætlanir um starfsemi safnsins og hafa umsjón með daglegum rekstri þess, bóka- og gagnakosti svo og tækjum,
  2. annast skráningu safnsins og sjá um að halda henni við,
  3. annast val og innkaup bóka og annarra gagna til safnsins í umboði skólameistara,
  4. leiðbeina nemendum og kennurum um notkun safnsins og aðstoða við upplýsingaöflun,
  5. kynna starfsemi safnsins innan skólans,
  6. fylgjast með nýjungum á sviði bókasafns- og upplýsingafræða,
  7. uppfærir og sér um heimasíðu bókasafnsins,
  8. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum,
  9. skila skýrslu til skólameistara um starfsemi safnsins í lok skólaárs.

 

Skólafulltrúi

Skólafulltrúi starfar á skrifstofu skólans. Auk venjulegra skrifstofustarfa s.s. ritvinnslu, ljósritunar, símavörslu, skjalavörslu og sækja og senda póst, annast hann ýmiss konar afgreiðslu í þágu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Skólafulltrúi:

1.   sér um innkaup á helstu rekstrarvörum skrifstofunnar í samráði við aðstoðarskólameistara.
2.   sér um pantanir, afgreiðslu og innheimtu á hádegismat fyrir starfsmenn.
3.   sér um að hella uppá kaffi á kennarastofu og dagleg þrif á vaski, skápum og borðum
      í  eldhúsaðstöðu á kennarastofu og hefur umsjón með blómum í skólahúsinu.
4.   tekur við tilkynningum um veikindi nemenda og skráir þau í nemendabókhald skólans.
5.   Er ritstjóri heimasíðu skólans og vísast um þau verkefni til starfslýsingar ritstjóra heimasíðu.
6.   vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum.

 

Húsvörður

Húsvörður hefur eftirlit með húsnæði skólans og öðrum eigum hans í umboði skólameistara.  Hann hefur eftirlit með viðhaldi á húsnæði, svo og allri ræstingu

Húsvörður skal m.a.:

  1. opna húsið að morgni áður en aðrir starfsmenn og nemendur koma til starfa.
  2. moka snjó frá dyrum og af stéttum.
  3. hafa umsjón með ræstingu.
  4. kaupa inn rekstrarvörur fyrir ræstingu og á snyrtingar.
  5. annast minniháttar viðhald á húsnæði og húsgögnum.
  6. koma með tillögur um meiriháttar viðhald og leggja þær fyrir stjórnendur.
  7. úthluta lyklum til starfsfólks og innheimta þá þegar það lætur af störfum.
  8. hafa og varðveita lykla af öllum vistarverum í húsnæði skólans.
  9. losa ruslafötur í kennslu- og stjórnunarálmu skólans.
  10. hirða um lóð skólans á sumrin.
  11. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum.

 

Ræstitæknir

Ræstitæknir sér um daglega ræstingu á húsnæði skólans í samráði við húsvörð.

Ræsting á kennslutíma:
Dagleg ræsting  þ.e. þrífa gólf, borð, skólatöflu, snyrtingar, þurrka úr gluggum og af veggjum.

 Ræsting utan kennslutíma:
     1.  dagleg ræsting í samráði við húsvörð,
     2.  hreingerningar á skólahúsnæði,
     3.  bónun gólfa.

Önnur störf :

  1. eftirlit með umgengni nemenda um húsnæði skólans,
  2. vinna önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum.

 

Brautastjóri

Verkefni brautastjóra felast m.a. í að:

  1. vinna með áfangastjóra að skipulagningu námsbrauta.
  2. vinna með matshópi við úttekt á kennsluáætlunum og námsárangri.
  3. hafa eftirlit og vera ráðgefandi með gerð kennsluáætlana.
  4. sjá um gerð bókalista og bókapantanir.
  5. vinna að kynningu námsbrauta og leiðbeina nýjum kennurum.
  6. gera skýrslu um störf sín við lok hvers skólaárs.

 

Umsjónarkennarar

Í upphafi skólaárs felur skólameistari kennara að hafa umsjón með nemendahópi undir stjórn námsráðgjafa. Í þessari umsjón felst:

  1. að fylgjast með skólasókn og námsárangri hvers einstaks nemenda í umsjónarhópnum,
  2. að ræða persónulega við nemendur og kynna sér viðhorf þeirra og líðan,
  3. að koma ábendingum um námsvanda og önnur persónuleg vandamál á framfæri við námsráðgjafa  og skólameistara eða staðgengil hans,
  4. að upplýsa foreldra ólögráða nemenda um málefni er tengjast skólagöngu barna þeirra,
  5. að vera nemendum til ráðuneytis um mál er tengjast skólavist þeirra,
  6. að aðstoða nemendur við námsval, skrá val í Innu og vinna með þeim námsáætlanir í samstarfi við námsráðgjafa og áfangastjóra,
  7. að leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi,
  8. að vera talsmaður nemenda sinna gagnvart skólastjórnendum,
  9. að miðla upplýsingum frá stjórnendum skóla til umsjónarnemenda sinna,
  10. að taka þátt í fundum með námsráðgjafa og áfangastjóra um umsjónarhópinn,
  11. að taka þátt í kynningarfundi fyrir foreldra nýnema (þeir umsjónarkennarar sem hafa umjón með nýnemum yngri en 18 ára).

Félagsmálafulltrúi

 

  1. situr fundi stjórnar nemendafélags FSH og aðstoðar nemendur við skipulagningu félagslífsins.
  2. annast miðlun upplýsinga milli stjórnenda skólans og nemenda
  3. aðstoðar nemendur við gerð fjárhagsáætlana og fjárreiður vegna félagslífs þeirra. Hann fylgist með bókhaldi nemendafélagsins og gætir þess að það sé fært að kröfum fjárhaldsmanns skólans.
  4. beitir sér fyrir að reglur skólans séu virtar í ferðum nemenda sem skipulagðar eru af hálfu skólans.
  5. hefur umsjón með keppnisliðum skólans (spurningakeppni framhaldsskólanna, íþróttalið og ræðukeppni).
  6. leggur á ráðin og skipuleggur atburði að eigin frumkvæði í samráði við nemendur og skólameistara.
  7. hefur samvinnu við forvarnarfulltrúa í málum er tengjast félagslífi nemenda og situr í forvarnarteymi skólans.
  8. kemur upplýsingum og fréttum sem tengjast starfinu til umsjónarmanns skólavefs.
  9. tekur saman yfirlit um störf nemendafélagsins fyrir hvert skólaár.

 

Forvarnarfulltrúi

  1. er í forsvari fyrir stefnumörkun, framkvæmd og kynningu forvarna í  skólanum.
  2. stuðlar að því að forvarnir í víðtækum skilningi séu hluti af daglegu starfi skólans.
  3. sér um að fá fræðslu sem tengist forvörnum fyrir starfsmenn, nemendur og foreldra.
  4. er til viðtals fyrir nemendur og forráðamenn þeirra a.m.k. einu sinni í viku.
  5. stýrir vinnu forvarnateymis. Auk hans sitja námsráðgjafi og félagsmálafulltrúi í forvarnateymi skólans.
  6. aflar sér þekkingar og hugmynda hjá fagaðilum og með þátttöku á námskeiðum.
  7. er sem oftast gæsluaðili á skóladansleikjum.
  8. er fulltrúi skólans í samstarfsverkefnum um forvarnir.
  9. sér um að koma upplýsingum og fréttum um forvarnastarfið til umsjónarmanns skólavefs.
  10. gerir skýrslu um störf sín við lok hvers skólaárs.

 

Ritstjóri heimasíðu FSH 

  1. ritstýrir og er ábyrgur fyrir öllu efni sem birtist á heimasíðu skólans.
  2. hefur samskipti við hönnuði og hýsingaraðila vefsins og segir til um breytingar sem gera skal á hönnun.
  3. færir  upplýsingar og tilkynningar frá skólayfirvöldum á heimasíðu skólans.
  4. leiðbeinir starfsfólki skólans og nemendum um notkun vefsins.
  5. leiðbeinir starfsfólki um hvernig nýtt efni er sett inn.
  6. vinnur að því að hver kennari setji upp virka heimasíðu á vef skólans með hvatningu og leiðbeiningum.
  7. hefur eftirlit með efni vefsins, stjórnar uppfærslu þess og endurnýjun.
  8. birtir fréttir og myndir úr skólalífinu á vefnum.

 

Matsnefnd

Í matsnefnd sitja  þrír starfsmenn skólans, einn úr hópi stjórnenda og tveir úr hópi annarra starfsmanna. Matsnefndin sér um framkvæmd innra mats skólans, þ.e.

  1. gæðamat með sjálfsmatslíkani og útgáfu skýrslu,
  2. kennslukannanir, umsjón, úrvinnsla og kynning,
  3. framkvæmd og úrvinnslu annarra kannana til að meta skólastarfið,
  4. tillögugerð til úrbóta samkvæmt niðurstöðum sjálfsmatsskýrslu og annarra kannana,
  5. kynningu á niðurstöðum innra mats skólans,
  6. viðhald og endurbætur á matstækjum.

Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Starfsfólk > Starfslýsingar

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH