Skólareglur
| Umgengisreglur | Siðareglur | Meðferð mála |
Nemendur skulu rækja nám sitt af áhuga og samviskusemi og ber þeim að mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
- Almenn kurteisi til orðs og æðis skal viðhöfð í samskiptum nemenda og starfsmanna skólans.
- Öllum ber að ganga vel um húsnæði og eigur skólans.
- Neysla og sala tóbaks, áfengis og annara vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum, á lóð hans og á skemmtunum og í ferðalögum á vegum skólans.
- Við brot á skólareglum skal veita nemanda skriflega áminningu áður en til refsingar kemur, nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki við komið, svo sem brot á almennum hegningarlögum.
- Brot á reglum um tóbak, áfengi og önnur vímuefni varðar tímabundna brottvikningu úr skóla að undangengnum andmælarétti og nemendum er gert að ræða við áfengis- og fíkniefnaráðgjafa áður en skólaganga hefst á ný. Endurtekið brot varðar endanlega brottvísun úr skóla.
- Nemendur og starfsfólk skulu ganga vel um allt húsnæði skólans og lóð hans.
- Nemendur og kennarar skulu sjá til þess að kennslustofur séu snyrtilegar þegar kennslustund lýkur.
- Stranglega er bannað að neyta matvæla í öllum kennslustofum og á bókasafni.
- Öllum ber að fara úr útiskóm í forstofu og nota skóhólf sem þar eru.
- Nemendur og starfsfólk skulu fara vel með tæki skólans og tilkynna strax til húsvarðar eða aðstoðarskólameistara ef þau eru ekki í lagi.
- Ef menn verða valdir að tjóni á eignum skólans ber þeim að bæta skaðann.
Í tölvuverum, raungreinastofu og á bókasafni gilda sérstakar umgenginsreglur sem þar eru kynntar.
Siðareglur
Í Framhaldsskólanum á Húsavík er lögð áhersla á að öll samskipti séu vingjarnleg og jákvæð. Við viljum hafa hvatningu og uppörvun að leiðarljósi í daglegu starfi skólans og að athugasemdir og gagnrýni vegna hegðunar séu séttar fram á málefnalegan og uppbyggjandi hátt.
Við ætlumst til þess að í skólanum ríki ávallt góður vinnufriður þannig að allir geti notið þjónustu skólans sem best.
Öllum bera að mæta stundvíslega, vera vel undirbúnir og með öll nauðsynleg náms- og kennslugögn í kennslustundir og gildir það jafnt um nemendur og kennara.
Í kennslustundum er kennarinn óumdeildur verkstjóri og ber nemendum að fylgja fyrirmælum hans. Sama gildir um fyrirmæli um verkefnaskil sem unnin eru utan kennslustunda.
Brjóti nemandi af sér með ósæmilegri hegðun eða óhlýðni og sinni ekki ábendingum kennara um að bæta ráð sitt skulu kennari og nemandi ganga á fund skólameistara og skýra málsatvik fyrir honum. Skólameistari metur hvort ástæða sé til að veita nemanda áminningu. Nemandanum er vísað úr viðkomandi áfanga ef hann brýtur ítrekað af sér. Kennari skal ekki vísa nemanda úr tíma nema í neyðartilvikum og þá ávallt beint til skólameistara.
Telji nemandi að kennari hafi brotið á sér með ókurteisi, ófullnægjandi kennslu, óstundvísi eða með öðrum hætti, getur hann lagt fram fomlega kvörtun til skólameistara sem er þá skylt að kanna málsatvik og gera viðeigandi ráðstafanir sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Skólameistara er skylt að upplýsa foreldra eða forráðamenn nemanda sem ekki hefur náð sjálfræðisaldri um öll mál sem upp koma og varða barn þeirra sérstaklega. Þegar nemandi hefur náð sjálfræðisaldri er einungis heimilt að veita honum sjálfum, eða þeim sem nemandinn veitir skriflegt umboð, upplýsingar um eigin hagi úr gagnasafni skólans.
Meðferð mála
Brjóti nemandi skólareglur skal veita honum viðvörun áður en til refsingar kemur nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki viðkomið, svo sem brot á almennum hegningarlögum. Áminning vegna brota á skólareglum eiga að vera skriflegar þar sem fram kemur m.a. tilefni áminningar, viðurlög og andmælaréttur hans. Viðurlög við broti á skólareglum geta verið brottrekstur úr áfanga eða skóla, tímabundið eða til frambúðar eftir eðli málsins.
Komi upp ágreiningur í skólanum milli nemenda, kennara, annars starfsfólks skólans eða utanaðkomandi aðila skulu aðilar leitast við að leysa hann sín á milli, annars er málinu vísað til skólastjórnenda, sem ákvarða í málinu. Náist ekki sátt um þá niðurstöðu má vísa málinu til menntamálaráðuneytis.







