Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Sjálfsmat FSH

Við FSH hefur frá vori 2002 verið starfshópur sem annast hefur innra mat á skólastarfinu.

Í matinu var unnið með Framhald-Skólarýni sem er sjálfsmatslíkan fyrir framhaldsskóla eftir Benedikt Sigurðarson. Einnig var forritið Kanni notaður við kennslukannanir og niðurstöður stefnumótunarvinnu starfsmanna FSH síðustu tveggja skólaára.

Spurningar í Framhalds-Skólarýninum eru í ellefu flokkum, hver flokkur samanstendur af nokkrum spurningum sem gefa 1000 punkta í matslíkaninu.

Vinnuaðferðir matshópsins voru eins við hverja spurningu, þ.e. að finna gögn, styrkleika og veikleika í skólastarfinu, benda á upplýsingaskort og koma með tillögur um úrbætur. Út frá gögnum sem til eru gaf matshópurinn einkunn samkvæmt einkunnarkvarða í prósentum, þessi einkunn er nefnd Forsendur. Einkunnir sem starfsmenn skólans gáfu í hverri spurningu voru umreiknaðar  í prósentur, þær voru nefndar Spönnun. Lokaeinkunn fyrir hverja spurningu var síðan fengin með meðaltali á forsendum og spönnun sem gaf stig sem skólinn fékk í matslíkaninu.

Í október 2004 gaf matshópurinn út sjálfsmatsskýrslu og í framhaldi af því fór hann sérstaklega yfir þau atriði sem nefnd voru í úrbótum og forgangsraðaði þeim.

Í febrúar 2009 gaf matshópurinn út skýrslu með niðurstöðum úr innra mati skólans á tímabilinu 2003 til vorsins 2008. 

Í núverandi matshóp eru: Gunnar Baldursson, Knútur Arnar Hilmarsson og Smári Sigurðsson (Auður Jónasdóttir leysir hann af í fæðingarorlofi á haustönn 2009).


Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Sjálfsmat > Sjálfsmat FSH

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH