Skólanefnd, skólaráð og kennarafundur
Skólanefnd
Menntamálaráðherra skipar 5 manna skólanefnd við skólann til fjögurra ára í senn, þrjá fulltrúa án tilnefningar og tvo fulltrúa tilnefnda af Norðurþingi. Varamenn eru valdir með sama hætti. Nefndin velur sér formann til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt og er framkvæmdastjóri nefndarinnar. Hann kallar skólanefnd saman til fyrsta fundar og stýrir kjöri formanns.
Áheyrnarfulltrúar eru þrír með málfrelsi og tillögurétt, einn er tilnefndur af kennarafundi, einn af nemendafélagi skólans og einn af foreldraráði, til eins árs í senn. Skólameistari skal leita eftir tilnefningum áheyrnarfulltrúa.
Hlutverk skólanefndar er að:
a. marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestri þjónustu við íbúa á starfssvæði skólans
og tengslum hans við atvinnu-, félags- og menningarlíf,
b. vera skólameistara til samráðs um námsframboð skóla,
c. staðfesta skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar og fylgjast með framkvæmd hennar,
d. veita skólameistara umsögn um árlega starfs- og fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og
fylgjast með framkvæmd hennar,
e. vera skólameistara til samráðs um fjárhæð þeirra gjalda sem skólameistari ákveður skv. 45. gr.,
f. vera skólameistara til samráðs um samninga sem viðkomandi skóli gerir,
g. vera skólameistara til samráðs um starfsmannamál,
h. veita ráðherra umsögn um umsækjendur um stöðu skólameistara.
Fulltrúar í skólanefnd skólaárið 2011-2012 eru:
Tilnefndir af menntamálaráðuneyti:
Elísa Elmarsdóttir, varamaður Gaukur Hjartarson.
Guðrún Árný Guðmundsdóttir, varamaður Gunnlaugur Stefánsson.
Tryggvi Finnsson, varamaður Snædís Gunnlaugsdóttir.
Tilnefndir af Norðurþingi:
Erna Björnsdóttir, varamaður Aðalsteinn J. Halldórsson
Trausti Aðalsteinsson, varamaður Sigríður F. Guðjónsdóttir.
Fulltrúi kennara er Auður Jónasdóttir, varamaður Herdís Þuríður Sigurðardóttir.
Fulltrúi nemenda er Inga Ósk Jónsdóttir, varamaður Silja Árnadóttir.
Fulltrúi foreldra er María Kristjánsdóttir.
Skólaráð
Kosið skal til skólaráðs við upphaf hvers skólaárs. Í ráðinu sitja tveir fulltrúar kennara kosnir á fyrsta kennarafundi skólaársins. Nemendaráð kýs tvo fulltrúa í skólaráðið. Skólameistari, aðstoðarskólameistari og áfangastjóri sitja í skólaráði. Skólameistari er oddviti skólaráðs og stýrir fundum þess.
Skólaráð:
- er skólameistara til aðstoðar og ráðgjafar um stjórn skólans,
- fjallar um starfsáætlun skólans og framkvæmd hennar,
- fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum, vinnu- og félagsaðstöðu nemenda,
- veitir umsögn um erindi frá skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendaráði, einstaklingum, skólameistara og menntamálaráðuneytinu sé þess óskað
- fjallar um mál sem varða einstaka nemendur. Með slík mál skal farið sem trúnaðarmál.
Fulltrúar í skólaráði skólaárið 2011-2012 eru:
Laufey Petrea Magnúsdóttir, skólameistari,
Björgvin Rúna Leifsson, áfangastjóri,
Knútur Hilmarsson, fulltrúi kennara,
Dóra Ármannsdóttir, fulltrúi kennara,
Sigrún Edda Kristjánsdóttir, fulltrúi nemenda,
Hafþór Reinhardsson, fulltrúi nemenda.
Varafulltrúar kennara eru Svava Björg Kristjánsdóttir og Smári Sigurðsson.
Varafulltrúi nemenda er Brynja Rún Benediktsdóttir.
Kennarafundur
Almennir kennararfundir fjalla um stefnumörkun í starfi skólans, m.a. námsskipan, kennsluhætti, gerð skólanámskrár, skipulag starfstíma skólans, tilhögun prófa og námsmat. Skólanefnd, skólameistari og skólaráð geta leitað umsagnar kennarafundar um önnur mál, þ.á.m. um ráðningu í stjórnunarstörf við skólann. Kennarafundur getur haft frumkvæði að því að mál komi til meðferðar skólanefndar og/eða skólaráðs.
Nefnd um mat á skólastarfi
Í matsnefnd sitja þrír starfsmenn skólans, einn úr hópi stjórnenda og tveir úr hópi annarra starfsmanna. Matsnefndin sér um framkvæmd innra mats skólans, þ.e.
- gæðamat með sjálfsmatslíkani og útgáfu skýrslu,
- kennslukannanir, umsjón, úrvinnsla og kynning,
- framkvæmd og úrvinnslu annarra kannana til að meta skólastarfið,
- tillögugerð til úrbóta samkvæmt niðurstöðum sjálfsmatsskýrslu og annarra kannana,
- kynningu á niðurstöðum innra mats skólans,
- viðhald og endurbætur á matstækjum.







