5. Þjónusta
Í Framhaldsskólanum á Húsavík er þjónusta:
a. Metnaðarfull, þar sem leitast er við að mæta mismunandi þörfum nemenda, starfsfólks og annarra þeirra sem til skólans leita.
b. Fagleg, þar sem lögð er áhersla á öfluga náms- og starfsráðgjöf og námsúrræði við hæfi nemenda með fötlun eða sértæka námsörðugleika.
c. Uppbyggjandi, þar sem lögð er áhersla á velferð nemenda og umhyggja og virðing höfð að leiðarljósi.







