Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

1. Nám

Í Framhaldsskólanum á Húsavík er nám nemenda:

a. Fjölbreytt og mætir ólíkum þörfum og áhugasviðum nemenda.

b. Krefjandi, þar sem nemendur fá viðfangsefni við hæfi og eru hvattir til virkrar þátttöku, vinnusemi, sjálfstæðara og agaðra vinnubragða og góðs árangurs.

c. Þroskandi, þar sem leitast er við að efla sjálfsmynd og sjálfstraust nemenda, siðferðiskennd þeirra og persónuþroska í öllum daglegum samskiptum

d. Skapandi, þar sem nemendur eru hvattir til gagnrýninnar hugsunar og sköpunar á öllum sviðum.

e. Lýðræðislegt, þar sem nemendur fá tækifæri til þess að hafa áhrif á nám sitt og námsumhverfi, starfa saman á jafnréttisgrundvelli, læri að setja sig í spor annarra og þorska með sér réttlætiskennd og aukna samskiptahæfni.

f. Þjálfun í læsi, þar sem lögð er áhersla á þekkingu, hæfni og leikni nemenda í að lesa og skilja eigið tungumál, erlend tungumál auk gagna og upplýsinga um margvísleg umfjöllunarefni á ýmsu formi.

g. Í tengslum við nærsamfélagið, þar sem leitast er við að tengja viðfangsefni skólastarfsins sögu, menningu, atvinnulífi, náttúru og umhverfi nemenda eins og því verður best við komið.


Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Markmið > Nám

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH