2. Kennsla
Í Framhaldsskólanum á Húsavík er kennsla:
a. Fjölbreytt, þar sem leitast er við að haga kennslu þannig að kennsluhættir geri öllum nemendum kleift að tileinka sér þekkingu og öðlast þá hæfni og leikni sem stefnt er að hverju sinni.
b. Einstaklingsmiðuð, þar sem leitast er við að mæta mismunandi forsendum nemenda þannig að hver og einn fái sem best notið hæfileika sinna.
c. Áhugavekjandi, þar sem lögð er áhersla á virkja nemendur til þátttöku og nýsköpunar á sem flestum sviðum.
d. Hvetjandi og uppbyggjandi, þar sem áhersla er lögð á að nemandinn öðlist trú á eigin getu og hæfileika og kennari vænti ætíð árangurs.
e. Skipuleg og markviss, þar sem nemendur fá skýr skilaboð um þær væntingar og kröfur sem gerðar eru til þeirra varðandi ástundun, vinnubrögð og árangur.
f. Í tengslum við nærumhverfið, þar sem viðfangsefnin tengjast nærsamfélaginu og auka þannig skilning og virðingu nemenda fyrir þeirra nánasta umhverfi.
g. Í takti við tímann, þar sem tekið er mið af nýjungum á sviði kennsluhátta og upplýsingatækni.







