Inntökuskilyrði í FSH
Almenn skilyrði
Rétt til inngöngu í skólann eiga allir sem lokið hafa grunnskólaprófi og náð þeim árangri sem kveðið er á um í aðalnámskrá framhaldsskóla. Skólameistari getur þó heimilað nemanda, sem uppfyllir ekki inntökuskilyrði brautar, að hefja nám á viðkomandi námsbraut ef hann telur líkur á því að nemandinn standist þær kröfur sem gerðar eru um námsárangur á brautinni, enda hafi nemendum, sem uppfylla inntökuskilyrðin, ekki verið hafnað. Auk þess er skólameistara heimilt skv. 15. gr. laga um framhaldsskóla að veita nemanda, sem orðinn er 18 ára gamall, inngöngu á einstakar brautir framhaldsskóla þótt hann uppfylli ekki lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.
Skilyrði um skólaeinkunn:
Vilji nemandi tryggja sér rétt til náms á öllum námsbrautum skólans þarf hann að ná ákveðinni lágmarksskólaeinkunn í íslensku, stærðfræði og í flestum tilvikum ensku við lok grunnskóla.
Til að hefja nám á styttri brautum skólans, öðrum en starfsbrautum eða almennri braut, þarf nemandinn að hafa hlotið tiltekna skólaeinkunn eða hærri einkunn í íslensku og stærðfræði.
Til að hefja nám á stúdentsbrautum þarf nemandinn að hafa hlotið tiltekna skólaeinkunn eða hærri einkunn í íslensku, ensku og stærðfræði.
Nemendum sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði, er gefinn kostur á að bæta fyrri námsárangur á almennri námsbraut.
1. Almenn skilyrði :
Lágmarks skólaeinkunn, íslenska og stærðfræði = 5,0. Strangari skilyrði geta gilt um þessar greinar á stúdentsbrautum.
Brautir, sem lúta inntökuskilyrðum skv. lið 1:
Félagsliðabraut
Námsbraut fyrir leiðbeinendur í leikskólum
Námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum
Sjúkraliðabraut
Skólaliðabraut
Nám á þessum brautum er auglýst sérstaklega hverju sinni og er ekki hægt að sækja um rafrænt.
2. Almenn námsbraut :
Meðaltal grunnskólaeinkunna í íslensku, stærðfræði og ensku undir viðmiði stúdentsbrauta eða:
Nemendur óákveðnir um brautarval eða:
Undirbúningsnám fyrir iðnnám eða listnám í öðrum framhaldsskólum.
Þessi námsbraut er alltaf í boði og hægt að sækja um rafrænt.
3. Stúdentsbrautir :
Nám á stúdentsbrautum er alltaf í boði og hægt er að sækja um rafrænt.
Félagsfræðibraut
Lágmarks grunnskólaeinkunn í íslensku og ensku 6,0 og stærðfræði 5,0
Náttúrufræðibraut
Lágmarks grunnskólaeinkunn í íslensku og stærðfræði 6,0 og ensku 5,0
4. Aðrar brautir :
Aðrar brautir sem eru í boði lúta sértækum inntökuskilyrðum og er ekki hægt að sækja um rafrænt:
Almenn endurmenntun öryrkja
Félagsliðabraut - brú
Leiðbeinendur í leikskólum - brú
Skólaliðabraut - brú
Starfsbraut
Stuðningsfulltrúar í grunnskólum - brú
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Röðun í áfanga
Til að hefja nám í þriggja eininga áfanga (103) í íslensku, ensku og stærðfræði þarf nemandinn að hafa fengið a.m.k. 7 í lokaeinkunn í þessum greinum á grunnskólaprófi.
Til að hefja nám í tveggja eininga áfanga (102) í þessum greinum þarf nemandinn að hafa fengið a.m.k. 5 í lokaeinkunn á grunnskólaprófi.
Skólaráð getur vikið frá þessum einkunnamörkum ef ástæða þykir til. Skólinn getur látið inntökureglur um 102/103 gilda um nemendur 18 ára og eldri eftir atvikum.







