Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Skráning úr námi

Skráning í próf og brottfall frá námi

Um leið og nemandi skráir sig í áfanga samþykkir hann þá tilhögun námsmats sem áfanganum fylgir og birt er í kennsluáætlun.  Skólinn auglýsir frest til breytinga á skráningu og stundatöflum í byrjun annar.  Nemandi, sem hyggst hætta í áfanga eða segir sig úr skóla eftir að frestur til töflubreytinga er liðinn, skal tilkynna það skólanum skriflega og er hann þá skráður hættur. Greinarmunur er gerður á skráningu þeirra sem hætta í áfanga áður en þessi frestur rennur út og hinna sem koma ekki til prófs, uppfylla ekki kröfur um vinnu í áfanganum skv. kennsluáætlun eða standast ekki prófkröfur.  Skólameistari getur veitt undanþágu frá þessum ákvæðum ef aðstæður nemanda breytast, t.d. vegna langvarandi veikinda, slysfara eða dauðsfalla í fjölskyldunni.

Skólinn ætlar að stuðla að því að minnka brottfall nemenda úr skólanum með því að stýra nemendum inn á brautir sem hæfa getu og áhugasviði nemendanna, með viðtölum nemenda við námsráðgjafa skólans og með aðhaldi umsjónarkennara.

 


Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Innritun > Skráning úr námi

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH