Reglur um fyrirgreiðslu við nemdendur við FSH með lögheimili í Norðurþingi utan Húsavíkur
Reglur um fyrirgreiðslu við nemendur við FSH með lögheimili í Norðurþingi utan Húsavíkur (Reykjahverfi, Raufarhöfn, Melrakkasléttu, Núpasveit, Öxarfirði og Kelduhverfi) með gildistíma frá upphafi yfirstandandi skólaárs.
- Nemendur, 21 árs og yngri, í dagskóla við FSH með lögheimili í Norðurþingi utan Húsavíkur fái greiddar kr. 25.000.- á önn. Styrkur greiðist eftirá gegn staðfestingu skólans á að viðkomandi nemandi hafi þreytt próf í amk 15 einingum.
- Nemendur sem falla undir ákvæði 1. greinar og búa lengra en 30 km frá skólanum og leigja húsnæði sem ekki fellur undir reglur um húsaleigubætur fá greiddan styrk sem nemur 40% af greiddri mánaðarleigu, þó aldrei hærri upphæð en kr. 8.000.- á mánuði. Styrkur greiðist mánaðarlega gegn framvísun leigusamnings og staðfestingar skólans á að nemandi stundi nám í amk 15 einingum á önn.
- Nemendur skili ofangreindum gögnum ásamt upplýsingum um innleggsreikning til skrifstofu Norðurþings á Húsavík sem annast greiðslu á styrkjunum.
- Frá og með næsta skólaári falli úr gildi reglur um aðrar fyrirgreiðslur sem verið hafa við nemendur í sveitarfélaginu vegna náms við framhaldsskóla. Nemendur sem þyggja styrk samkvæmt eldri reglum geta ekki þegið styrk samkvæmt nýjum reglum á sama tíma.







