Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Innritun

Við FSH eru eftirtaldar námsleiðir í boði á vorönn 2012:

Almenn námsbraut:

       25 – 30 eininga nám með áherslu nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, almennar greinar og valgreinar.

       30 – 35 eininga nám með áherslu á undirbúning undir iðnnám.

Námsleiðir til stúdentsprófs: 

       Félagsfræðibraut, 140 einingar, með áherslu á samfélagsgreinar.

       Náttúrufræðibraut, 140 einingar, með áherslu á raungreinar.

       Viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu námi af list-, iðn- og starfsnámsbrautum.

Þá er í boði að stunda nám, t.d. fjarnám (sjá gjaldskrá), í stökum áföngum. 

Eftirtaldir áfangar eru í boði í fjarnámi eða dagskóla á vorönn 2012:
DAN203, EFN303, ENS202, ENS203, ENS403, FÉL103, FÉL03, ÍSL202, ÍSL203, ÍSL303, ÍSL403, JAR203, LAN103, LÍF103, NÁT103, NÁT113, NÁT123, SAG203, SAG403, SÁL203, SÁL303, SÁL403, STÆ102, STÆ202, STÆ203, STÆ403, STÆ413, UPP203, ÞÝS203, ÞÝS403.

Flestar áfangalýsingar má finna hér.

Nánari upplýsingar um námsleiðir og fyrirkomulag náms og kennslu er að finna hér.  Stjórnendur skólans og námsráðgjafi veita frekari upplýsingar og ráðgjöf varðandi val á námsleiðum. Upplýsingar um inntökuskilyrði á námsbrautir skólans er að finna hér. 

Umsóknarfrestur um nám er framlengdur til 16. desember.

Nemendur skólans á haustönn 2011, sem hafa valið í Innu fyrir vorönn 2012, þurfa ekki að sækja um sérstaklega.  Aðrir eldri nemendur sækja um í skólanum. Þeir, sem hyggjast sækja um viðbótarnám til stúdentsprófs, nám í stökum áföngum eða fjarnám þurfa þó að hafa samband við áfangastjóra.

Viðtalstímar áfangastjóra í desember vegna innritunar eldri nemenda eða í fjarnám eru eftir samkomulagi.

Endilega hafið samband við skólann og kynnið ykkur nánar þá möguleika sem bjóðast.

 

Inntökuskilyrði

Mat á námi úr öðrum skólum

Þegar nemandi flyst á milli skóla sem starfa skv. aðalnámskrá framhaldsskóla og skráir sig þar á tiltekna námsbraut halda þeir áfangar gildi sínu sem hann hefur lokið með fullnægjandi árangri svo framarlega sem þeir eru skilgreindur hluti af þeirri braut sem hann innritast á.  Áfanga, sem kunna að falla utan brautarinnar, má meta sem valgreinar að því marki sem nemur valgreinakvóta viðkomandi brautar.

Hafi nemandi stundað nám við skóla sem ekki starfar samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla ber skólameistari ábyrgð á því að hve miklu leyti námið verður metið inn á nýja námsbraut.  Við matið skal ekki leita eftir því að fyrra nám sé nákvæmlega það sama og skilgreint er í námskrá heldur skal leggja áherslu á að athuga hvort ekki sé hægt að meta námið sem jafngilt og hvort nemandinn hafi forsendur til að ljúka náminu.  Leiki vafi á hvernig rétt sé að meta nám er rétt að láta nemandann njóta vafans eða vísa honum á að fara í stöðupróf. Þá er vakin athygli á að list- eða starfsnám má meta til kjörsviðs á bóknámsbrautum. Að öðru leyti en að ofan greinir er vísað í aðalnámskrá framhaldsskóla eftir því sem við á hverju sinni.

Mat á formlegu námi úr tónlistarskólum skv. námsskrá þeirra er sem hér segir:
Heimilt er að meta nám á grunnstigi til allt að 8 eininga í óbundnu vali, hafi nemandinn lokið grunnprófi.
Heimilt er að meta nám á miðstigi til allt að 12 eininga á kjörsviði, hafi nemandinn lokið miðprófi.



Innritunargjöld
Innritunargjöld eru greidd fyrirfram fyrir hverja önn.  Eindagar eru 1. ágúst og 20. desember.  Greiði nemandi ekki innritunargjaldið á gjalddaga hækkar það.  Ekki er gerð stundatafla fyrir nemendur sem eru innritaðir en eiga ógreidd innritunargjöld.  Þessi gjöld eru óafturkræf þó nemandi af einhverjum ástæðum hætti við skólavist.

Nemendafélagsgjald er innheimt með innritunargjaldi. Nemandi getur sagt sig úr nemendafélagi og fengið gjaldið endurgreitt í fyrstu viku eftir að skóli hefst.

 


Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Innritun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH