Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húsnæði skólans

Húsnæði og þjónusta

Skólinn er til húsa að Skólagarði 10 Húsavík. Þar fer mest öll kennsla fram í 11 kennslustofum. Þar er einnig bókasafn, skrifstofa skólans og aðstaða stjórennda, kennara og annars starfsfólks. Íþróttakennsla fer fram í íþróttahöllinni sem er næsta hús við skólann og í líkamsræktarstöðinni Töffsport sem er til húsa að Garðarsbraut 26.
Í kennaraálmu er vinnuaðstaða kennara. Þar eru vinnuherbergi með aðstöðu fyrir þrjá kennara í hverju, tölvuver auk ljósritunar.

Á skrifstofu skólans fer fram öll almenn afgreiðsla, þar starfar skólafulltrúi skólans. Skrifstofan er opin 8:00 til 13:00

Bókasafn skólans er opið nemendum mánudaga til föstudaga frá 8:00 til 15:00. Lesstofa er opin á sama tíma. Bókasafnsfræðingur veitir safninu forstöðu og annast bókakaup. Flestar bækur eru til útláns, en ýmsar handbækur eru aðeins lánaðar á lesstofu.

Matstofa nemenda er í kjallara skólans, þar geta þeir snætt nestið sitt og þar selja þeir léttar veitingar í nestis- frímínútum og í hádegishléi.

Tölvuver skólans er opið nemendum eins og kostur er. Þar hafa þeir m. a. aðgang að internetinu. Nauðsynlegt er að skólinn geti ávallt boðið nemendum upp á sem bestan tölvukost og það nýjasta í upplýsingaöflun á hverjum tíma.

Skólanefnd hefur ákveðið að bætt félags- og mötuneytisaðstaða nemenda verði forgangsverkefni í húsnæðismálum skólans.

Skólinn vill kanna möguleika á því að sameina bókasafn skólans og Héraðsbókasafn Þingeyinga með nýbyggingu við skólann. Stefnt verði að því að koma upp aðstöðu til verknáms við skólann. Stefnt verði að því að reist verði heimavist við skólann.

Umhverfismál

Leitast skal við að ná hámarksnýtingu og draga úr hvers kyns sóun verðmæta,t.d. orku og aðfanga í rekstri skólanns.
Fremur ber að velja viðurkenndar umhverfisvænar vörur fremur en þær sem valda  skaða í umhverfinu.
Úrgang sem til fellur í rekstri skólans ber að endurnota og endurvinna eftir því sem kostur er og tryggja að spilliefnum sé fargað á viðeigandi hátt. Draga skal úr notkun einnota hluta eins og kostur er.
Skólinn leggur áherslu á  umræðu og fræðslu í umhverfismálum.


Staðsetning:

Forsíða > Skólinn > Húsnæði skólans

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH