Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Viðtölin

Viðtal við Anítu

Ég er semsagt stödd í borginni Blumenau, í fylkinu Santa Catarina í Suður-Brasilíu. Hér búa rúmlega 300 þúsund manns, jafnmikið og á Íslandi haha. Borgin er í þýskum stíl vegna áhrifa þjóðverja sem settust hér að sem er nú ekki leiðinlegt, fá bæði brasilíska menningu og þýska. Hér t.d. er haldin Októberfest eins og í Þýskalandi og nánast allt eldra fólk talar þýsku. Love it! Fjölskyldan mín er algjört æði, í húsinu mínu búa mamma mín, pabbi minn, bróðir minn og kærastinn hans. Svo í íbúð á efri hæðinni býr systir mín með eiginmanni sínum og tveimur sonum þeirra. 
Mér fannst portúgalskan ekkert rosalega erfið. Var svo sem alveg búin að ná tökum á málinu eftir 2 mánuði, gat þá skilið allt og bjargað mér alveg í öllu. Þurfti að ná tungumálinu fljótt þar sem enginn í fjölskyldunni minni talar ensku. Eftir það er ég bara búin að vera að læra betur, málfræðina og bæta orðaforðann svo ekki sé talað um framburðinn sem mér finnst erfiðastur. Annars er þetta snilldar tungumál, er erfiðara en spænska en spænska er mjög auðveld að læra ef þú talar portúgölsku sem og ítalska og franska.
Skólakerfið er frekar lélegt hér, ég geng í almenningsskóla frá klukkan 7:30 á morgnana til 11:30. Fjórir tímar og maður þarf varla að læra. Fólk situr bara og spjallar allan skóladaginn og tekur varla upp penna og blað til að glósa. Enskukennsla er alveg hreint út sagt hræðileg, kennarar hér þurfa ekki að tala ensku til að fá að kenna hana. Einnig eru krakkarnir mjög öðruvísi, held að allir sem hafa farið til S-Ameríku og hitt krakka á sínum aldri segi að þau séu mun meira óþroskuð. Menningin er svo allt öðruvísi; krakkar byrja að vinna uppúr átján ára aldri, búa hjá foreldrum sínum fram að þrítugsaldri og eru miklu meira háð fjölskyldunni. Svo það er aðeins erfiðara að eignast vini á sínum aldri heldur en eldri. Hvað varðar djammið þá er nú meira af því hér heldur en á Húsavíkinni. Það er alltaf eitthvað um að vera um helgar og stundum koma mánuðir þar sem er eitthvað alla daga vikunnar. T.d. Októberfest sem var allan októbermánuð og hægt var að fara á djammið á hverjum degi. Svo núna í janúar byrjaði Sommerfest sem er mini-októberfest og er opið alla daga. Októberfest er stærsta hátíð í fylkinu og þegar mest var, voru 400 þúsund manns öll samankomin á djamminu þar. Var geðveikt! Svo núna um seinast var Carnival . Ég fór til annars bæjar, Navegantes og Carnival byrjaði á laugardeginum með skrúðgöngu og var fram á þriðjudag. Allan daginn langt fram á nótt með músík og skrautklæddu fólki. Á mánudeginum fór ég á Navegay sem er skrúðganga samkynhneigðra. Allir karlar klæddir í kjóla og konur í karlaföt, var frá 3 um daginn fram á nótt. Stórir trukkar með músík og allir dansandi. Hef held ég aldrei dansað jafn mikið á ævinni eins og þessa helgi! 
Á venjulegum degi fer ég í skóla klukkan hálfátta til hálfellefu, svo fer ég vanalega heim til að borða hádegismat með bróður mínum og móður þar sem aðrir eru að vinna á þessum tíma. Svo vanalega legg ég mig aðeins eftir á þar sem það er svo heitt að það er ekki hægt að fara að gera eitthvað. Svo á kvöldin fer ég annaðhvort að hitta vini eða þá er bara heima með fjölskyldunni. Um helgar fara foreldrar mínir alltaf á ströndina og stundum fer ég með þeim, ef ekki er ég hér heima og fer á djammið með vinum og svona. Er mjög mikið í menningunni að hafa stóran hádegisverð á sunnudögum og eru það oftast við vinirnir sem gistum þá öll heima hjá mér og vöknum snemma daginn eftir til að byrja að elda fyrir hádegismátinn. Finnst þessi hefð æði
Veðrið hér er fáranlegt, það er svo heitt stundum að það er ekkert hægt að gera án þess að svitna eins og maraþonhlaupari. Held að heitasti dagur sem ég hef upplifað hér var núna í febrúar en þá var rúmlega 45 stiga hiti allan daginn og málið er að þegar það er 40 stiga hiti þá líður þér ekki eins og það sé bara 40. Þér líður eins og það er sirka 20 gráðum meira vegna rakans í loftinu svo það er nánast ólíft. En góða hliðin er þó að ég er orðin tönuð haha, gerist ekki oft! Svo rignir rosalega mikið og búið að vera mikið af hörnungum vegna þess, þá rignir svo mikið að árnar flæða yfir bakka sína og vatnið flæðir inní hús og yfir götur. Á þar seinasta ári rigndi svo mikið hér að nokkur hundruð manns dóu og mörg þúsund hús eyðilögðust en sem betur fer hefur ekkert því um líkt gerst hér síðan ég kom. 
Aðalhluti menningarinnar er góður matur, tónlist, dansar og partý. Það skiptir ekki máli í hvaða veislu þú ferð, hvort það sé afmælisveisla, brúðkaup, útskriftarveisla eða hvað annað, það er alltaf góður matur, góð tónlist og dansað fram á nótt og það kunna allir að dansa sem lætur mér alltaf líða eins og asna haha. Þetta er víst eitthvað sem allir Brasilíubúar fæðast með. 
Annars verð ég bara að segja að ég er algjörlega að dýrka lífið hér, held að þetta sé eitthvað sem allir ættu að gera. Frábær lífsreynsla!:)

- Aníta Ösp

 

 

Viðtal við Hafþór

Blessud. Nuna er eg staddur i utjadri Sao Paolo i Brasiliu hja Afs sjalfbodalida fjolskyldu. Astaedan fyrir tvi er ad flugvellinum i Santiago i Chile, tar sem eg atti ad lenda a laugardeginum sidastlidnum, var lokad vegna jardskjalftans tar i landi og tvi get eg ekki flogid fyrr en i fyrsta lagi a morgun. A laugardeginum og fyrri hluta sunnudags var eg a hoteli sem flugfelagid reddadi mer og let mer nu bara leidast tar. Svo var eg sottur af Afs og fekk gistingu hja sjalfbodalida. I gaer for eg svo i midbae Sao Paolo og spokadi mig um a Paulista Avenue, sem mer er sagt ad se staersta og flottasta breidgata Latnesku Ameriku og svo keypti eg mer mida i stortonleika Coldplay sem eru i kvold a fotboltaleikvangi herna i borginni :)
Eg er ad fara til sirka 100.000 manna baejar nordur af hofudborginni, Santiago, sem heitir Quillota. Mer skilst ad skemmdirnar hafi ekki verid mjog miklar tar og fjolskyldan sem eg er ad fara ad bua hja er ohult og ekki miklar skemmdir hja teim.
Mer dettur ekki i hug ad fara heim, tessi ovaenta dvol herna i Brasiliu er bara buin ad vera skemmtileg og eg bid bara eftir tvi ad geta haldid af stad til Chile.
Eg verd i sirka ellefu manudi, kem heim i januar 2011. Eg er bara ad fara i venjulegan framhaldsskola og er ad ollum likindum bara ad fara ad laera svipud fog og heima a Islandi og svo natturulega spaensku :)



Staðsetning:

Forsíða > Viðtöl

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík