Fréttir NEF
9. janúar 2012
FSH í Gettu betur
Næst komandi miðvikudag, 11. janúar, mætir lið FSH aldrei þessu vant MR-ingum í spurningakeppninni Gettu betur. Við erum að verða vön því að vera dregin út á móti MR og skorumst ekki undan því. Þar sem ekki hefur verið sérstakur áfangi í boði í vetur sem undirbúningur fyrir Gettu betur ákvað stjórn NEF að leita til útskriftarnema með fulltrúa til að keppa fyrir okkar hönd. Útskriftarnemar voru ekki í vandræðum með það og þeir Andri Dan, Fannar Freyr og Hafþór buðu sig fram í þetta verðuga verkefni. Keppnin fer fram klukkan 19:30 sem fyrr segir á miðvikudaginn og er hægt að hlusta á hana á Rás 2. ÁFRAM FSH.







