Fréttir NEF
31. ágúst 2010
Skemmtiferð !
Í gær fóru nemendur í svokallaða skemmtiferð. Lagt var af stað frá skólaplaninu um fjögur leitið. Haldið var inná Akureyri þar sem byrjað var á að fara í keilu. Þegar allir höfðu lokið sínum leik komu allir sér í rútuna og var lagt af stað upp í Kjarnaskóg þar sem menn áttu að nærast. Nemendum voru úthlutuð einota grill, áttu þeir að grilla sjálfir pylsur og gekk það misvel. En endaði það nú samt þannig að allir fóru saddir úr Kjarnaskógi. Eftir Kjarnaskóg var haldið í skautahöllina en ekki til að fara á skauta heldur til að fara í krullu. Þar var nemendum skipt í hópa. Fimm voru í hóp en tíu á braut. Menn sýndu meistaratakta og má orða það þannig að nýnemarnir hafi komið gríðarlega sterkir inn. Í krullu áttum við að skipta með okkur hlutverkum eins og að stjórna og að sópa, skiptust nemendur á hlutverkum svo að allir fengju að prófa allt. Eftir krullu var boðið upp á kvöldhressingu sem í þessu tilfelli var prins póló og svali. Svo var ferðinni haldið heim til Húsavíkur.







