Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir NEF

29. febrúar 2012

Dagur 2 - punktur

Þemastarfið gekk alveg hreint með ólíkindum í dag - margir eru komnir með frábærar hugmyndir og bíðum við spennt eftir að sjá afraksturinn á fimmtudag.
Menn nýttu sér hádegistilboðin eins og enginn væri morgundagurinn en eins og eins og flestir vita þó að þá eru tilboðin út vikuna en um að gera að missa ekki af neinu.
Smiðjurnar fóru frábærlega af stað, menn gæddu sér á dýrindis nautasteik og súkkulaðiköku hjá Jóni Friðriki í matreiðslusmiðju, fengu að vita hvernig best að að rækta líkamann . . .

28. febrúar 2012

Þakkir til styrktaraðila

Það að halda Dillidaga og árshátíð kostar peninga og líklega meiri en nemendur gera sér margir hverjir grein fyrir.
Það er gott að eiga góða að og margir sem hafa viljað styrkja okkur í þessari skemmtiviku og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Þeir aðilar sem hafa veitt okkur stuðning eru eftirtaldir:

 

 

27. febrúar 2012

Dagur eitt - punktur

Dagur eitt búinn - frábær dagur þar sem nemendur nýttu sér heilsusamleg tilboð um allan bæ - fóru á kostum í ratleik þar sem gífurlega hörð keppni var háð og framhald verður á keppni - auk þess sem Mið Ísland lengdi ár Nebbalinganna um fleiri fleiri ár með stórkostlegu uppistandi á Hótelinu sem bæjarbúar létu ekki framhjá sér fara.
Á morgun . . .

26. febrúar 2012

Dillidagar NEF 2012

Þá er loksins komið að hinum frábæru Dillidögum NEF.

Dagur 1 = Fullt af flottum hádegistilboðum – Smá breyting á dagskrá en farið verður í ratleik í stað Hallarsprells þar sem þemahóparnir keppa saman í skemmtilegum þrautum og hefst leikurinn í salnum í skólanum þar sem Dillicupkeppendur kynna sig til leiks – Um kvöldið skemmta síðan Mið Ísland okkur á Hótelinu.

Dagskrá Dillidaga og bæklingur.

 

15. febrúar 2012

Á næstunni?

Það er margt um að vera á næstu dögum hjá NEF. Í næstu viku höldum við að sjálfsögðu upp á Konudaginn, sem er reyndar á sunnudaginn en við höldum hann hátíðlegan í skólanum á mánudag. Þann sama dag rífa menn í sig bollur eins og þeir geta í sig látið. Á miðvikudaginn mæta allir í búningum ...

6. febrúar 2012

Búið að raða í hlutverk hjá Píramusi og Þispu

Nú er búið að raða niður í hlutverk hjá P&Þ, með hlutverk Orms fer Jón Ásþór Sigurðarson, Ranúr verður leikinn af Patreki Gunnlaugssyni, Halla er leikin af Eygló, Valdís leikur Lindu, Hrannar Rafn leikur Þór þorskhaus, með hlutverk kennaranna fara Aðalbjörn en hann leikur Arnór kennara og  Stefán Júlíus sem leikur íþróttakennarann. Stefnt er á sýningar í lok mars en þeir sem eru farnir að hlakka mikið til geta hitað upp með kvikmyndinni Gauragangur sem kom út fyrir rúmu ári en þar fer einmitt húsvískættaði leikarinn Alexander Briem.



Staðsetning:

Forsíða > að gerast

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík