Fréttir NEF
20. mars 2012
Mottumars
Mottumars er í fullum gangi eins og hefur líklega ekki farið framhjá Nebbum í fjölmiðlum. Við hvetjum alla karlkyns nebba til að safna í krúttlega mottu og alla kvenkyns nebba að undirbúa sig með gervimottuna. Verðlaun verða veitt í báðum flokkum fimmtudaginn 29. mars. Okkar maður Baldur Ragnarsson er góð fyrirmynd í þessari skemmtilegu herferð http://www.mottumars.is/m/Profile.aspx?cid=2565
6. mars 2012
Takk fyrir okkur
Stjórn NEF og Árshátíðarnefnd þakkar Nebbalingum fyrir frábæra viku - öllum þeim sem aðstoðuðu okkur á einn eða annan hátt og tóku þát tmeð bros á vör - DILLHÚRRA FYRIR OKKUR :D
Það eru komnar inn myndir á facebooksíðuna okkar sem Þura Hallgríms var svo elskuleg að taka fyrir okkur - þar eru allir alveg ofboðslega sætir og fínir :D
6. mars 2012
Dagur fimm - punktur
Upp er runninn árshátíðardagur.
Gott að byrja daginn á smá hreyfingu í hallarsprelli með Áslaugu Guðmunds sem var með heraga á lýðnum sem skemmti sér konunglega, sumir sáu sér ekki fært annað en að svindla smá!
Svo kláruðu Dillicupkeppendur vikuna með stæl en áður höfðu . . .
6. mars 2012
Dagur 4 - punktur
Síðasti í þemadögum og kynning fyrir bæjarbúa sem sýndu opnu húsi mikinn áhuga. Það var hópur nr. 4 sem var með atvinnumál á sínum snærum og nefndi verkefnið sitt Framtíðin okkar Rokkar sem bar sigur úr býtum í æsispennandi keppni á milli hópanna.
Um kvöldið fór svo NEFRennsli fram í sal Borgarhólsskóla . . .
2. mars 2012
Dagur fjögur - punktur
Allt á fullu í þemavinnu enda síðasti dagurinn og kynning fyrir bæjarbúa svo ekkert mátti klikka. Sem það gerði heldur ekki, ótrúlega flott opið hús sem Nebbalingar buðu upp á í dag. Það verður spennandi að heyra hvaða stofa/verkefni sigraði í þessari flottu keppni.
Pítsahlaðborðið á Sölku klikkaði ekki frekar enn fyrri árin, menn komu afvelta þaðan út.
NefRennslið rann ljúflega í umsjón Geirfuglsins og Bárðdælingsins. . .
2. mars 2012
Dagur þrjú - punktur
Allt á fullu í þemavinnu alveg fram að hádegi. Þá nýttu menn sér tilboðin góðu en það varð smá misskilningur með bakaríið og það verður bætt úr því í næstu viku svo menn geta beðið spenntir. Smiðjur héldu áfram eftir hádegi og ekki klikkuðu þær frekar enn fyrri daginn. Magnaðar smiðjur í ár þó við segjum sjálf frá :D
Um kvöldið skellti mannskapurinn sér svo í laugina þar sem léttir sundsprettir voru teknir og þemavinnu - og smiðjusvitinn skolaður af kroppnum.
29. febrúar 2012
Dagur 2 - punktur
Þemastarfið gekk alveg hreint með ólíkindum í dag - margir eru komnir með frábærar hugmyndir og bíðum við spennt eftir að sjá afraksturinn á fimmtudag.
Menn nýttu sér hádegistilboðin eins og enginn væri morgundagurinn en eins og eins og flestir vita þó að þá eru tilboðin út vikuna en um að gera að missa ekki af neinu.
Smiðjurnar fóru frábærlega af stað, menn gæddu sér á dýrindis nautasteik og súkkulaðiköku hjá Jóni Friðriki í matreiðslusmiðju, fengu að vita hvernig best að að rækta líkamann . . .
28. febrúar 2012
Þakkir til styrktaraðila
Það að halda Dillidaga og árshátíð kostar peninga og líklega meiri en nemendur gera sér margir hverjir grein fyrir.
Það er gott að eiga góða að og margir sem hafa viljað styrkja okkur í þessari skemmtiviku og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Þeir aðilar sem hafa veitt okkur stuðning eru eftirtaldir:
27. febrúar 2012
Dagur eitt - punktur
Dagur eitt búinn - frábær dagur þar sem nemendur nýttu sér heilsusamleg tilboð um allan bæ - fóru á kostum í ratleik þar sem gífurlega hörð keppni var háð og framhald verður á keppni - auk þess sem Mið Ísland lengdi ár Nebbalinganna um fleiri fleiri ár með stórkostlegu uppistandi á Hótelinu sem bæjarbúar létu ekki framhjá sér fara.
Á morgun . . .
26. febrúar 2012
Dillidagar NEF 2012
Þá er loksins komið að hinum frábæru Dillidögum NEF.
Dagur 1 = Fullt af flottum hádegistilboðum – Smá breyting á dagskrá en farið verður í ratleik í stað Hallarsprells þar sem þemahóparnir keppa saman í skemmtilegum þrautum og hefst leikurinn í salnum í skólanum þar sem Dillicupkeppendur kynna sig til leiks – Um kvöldið skemmta síðan Mið Ísland okkur á Hótelinu.
Dagskrá Dillidaga og bæklingur.







