Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir NEF

19. janúar 2011

NIÐURSTÖÐUR NEF FUNDAR 18. JAN

NIÐURSTÖÐUR NEF FUNDAR 18. JAN

Þriðjudaginn 18. jan stóð stjórn NEF fyrir fundi til að kanna áhuga og hugmyndir nemenda þegar kemur að félagslífinu. Það er skemmst frá því að segja að áhugaleysi virðist því miður vera almennt, nenna lítil og menn vilja að aðrir skemmti þeim en ekki skemmta sér sjálfir þrátt fyrir fína aðstöðu til þess. Eftir að hafa farið yfir niðurstöður er það umhugsunarefni hvort ekki eigi hreinlega að loka Ungmennahúsinu Túni? Næsta skref er að stjórn NEF og Túns fara betur yfir niðurstöðurnar og reyna að nýta sér þær við að plana þessa önn eins og t.d. Dillidaga. Það kom víða fram að engin eða lítil stemming væri í nemendahópnum en nemendur mega ekki gleyma því að sú stemming er algjörlega undir þeim sjálfum komin og engum öðrum, þeirra mætingu og þátttöku – menn ættu að taka það til umhugsunar!

 

14. janúar 2011

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra mætir FSH í Gettu betur

Dregið var í fyrstu umferð Gettu betur – spurningakeppni framhaldsskólanna á rás tvö í gær. Lið FSH dróst þar gegn liði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þetta var reyndar í annað sinn sem dregið var þar sem formgallar reyndust á framkvæmdinni í fyrra sinnið. Þá höfðu þessir sömu skólar einnig dregist saman svo óhætt er að segja að forlögin hafi ætlað þeim að mætast þetta árið.

Keppnin fer fram á rás tvö miðvikudaginn 2. febrúar, kl. 19:30.

12. janúar 2011

Spurningar

7. janúar 2011

Fyrsta skólavikan / fyrsti skóladagurinn.

Skólinn var settur síðasta miðvikudag 5. janúar klukkan hálft tíu.



Staðsetning:

Forsíða > að gerast

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík