Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir NEF

2. desember 2011

Jólavist

Í gær komu nemendur saman í sal skólans og spiluðu félagsvist. Það var Hafþór Mar sem koma með þessa frábæru hugmynd og nokkuð ljóst að nemendur þurfa að gera miklu meira af því að hittast og grípa í spil. Menn stóðu sig þó

 

25. nóvember 2011

Kaffihúsakvöldið Gunna

Gunna er orðinn fastur liður í félagslífi NEFlima FSH og er í umsjón NEF stjórnar en Túnráð aðstoðaði stjórnina í ár. Í gærkvöldi var Gunna haldin í sal FSH og hefur sjaldan verið glæsilegri. Mjög fjölbreytt dagskrá var í boði: Tískusýning í umsjóna áfangans Tíska, húð og hár,

16. nóvember 2011

Dagur íslenskrar tungu

Nemendur komu saman á sal í dag í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Dagskráin var í höndum nemenda og umsjón hafði Dóra Ármannsdóttir. Það kom ekki á óvart að nemendur stóðu sig mjög vel og það sem m.a. var á dagskrá var upplestur á ljóðum eftir þekkt skáld sem lesin voru af mikilli tilfinningu, frumsamið ljóð eftir Fannar Frey og flott tónlistaratriði þar sem líka var flutt frumsamið efni í boði Axels, Brynjars og Gunnars Inga og mátti heyra nemendur og starfsfólk raula Fýlupúkann og Hvalinn Val á göngunum að dagskrá lokinni. Það er nokkuð ljóst að það þarf að kalla nemendur oftar saman á sal þar sem listamenn í þessum skóla fá tækifæri til að skemmta okkur hinum. Hægt er að sjá myndir í myndasafni skólans frá þessari flottu dagskrá.

8. nóvember 2011

Alþjóðlegur dagur gegn einelti

8. nóvember hefur verið valinn sem sérstakur dagur í baráttunni gegn einelti hér á landi. Af tilefni dagsins hefur verið ákveðið að ganga frá (þjóðar) sáttmála um að vinna gegn einelti. Það verður gert með athöfn þar sem fulltrúar Ríkistjórnar Íslands, fulltrúar félaga og samtaka undirrita sáttmálann.

26. október 2011

Vertu til!

Þessa stundina er í gangi leikur á Facebook sem hefur það að markmiði að fækka alvarlegum slysum í umferðinni á meðal ungs fólks en því miður hafa fjórir 17 ára ungmenni látist í umferðarslysum það sem af er þessu ári.

Í keppninni hefur öllum skólum á landinu hefur verið skipt niður í riðla og annar riðill að hefur nýlokið keppni. Síðan heitir Vertu til! og hér getur þú farið inn á hana:

15. október 2011

Meistaramót Í Allskonar!

Á fimmtudaginn 15. okt. Héldu stjórn NEF og túnráð meistaramót í allskonar!

5. október 2011

Forvarnardagurinn í framhaldsskólunum

Í dag er forvarnardagurinn í framhaldsskólunum. Af því tilefni héldu nemendur í lífsleikni "Þjóðfund" í gær þar sem þeir svöruðu spurningum sem síðan verða notaðar í áframhaldandi forvarnarstarfi.
Annað sem er í gangi í tilefni af þessum degi er:
Myndbandasamkeppni www.facebook.com/forvarnardagur en í verðlaun eru 250.000 krónur.
Ratleikur www.forvarnardagur.is sem er netratleikur og í verðlaun er iPod touch.
Hvetjum alla til að kynna sér þetta og taka þátt.

5. október 2011

Hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna

Snilldarlausnir Marel er hugmyndasamkeppni sem gengur út á það að gera sem mest virði úr einum ákveðnum einföldum hlult. Árið 2009 var hluturinn herðatré, árið 2010 var það pappakassi en í ár er það dós sem leikur aðalhlutverkið.
Hver man ekki eftir flotta pappakassanum sem vann keppnina í fyrra og hinum fjórum frábæru hugmyndunum sem komu úr skólanum okkar. Það væri gaman ef sem flestur tækju þátt í ár og að verðlaunin færu aftur til FSH. 
 

2. október 2011

Skemmtiferð NEF - FSH og Túns

Hefð er fyrir því að hefja veturinn á því að fara í skemmtiferð með nemendur og hrista saman nýnemana og eldri nemendur. Undan farin ár hefur verið farið í ferð inn á Akureyri og við breyttum ekkert út af vananum í ár en dagskráin var með allt öðru sniði.

30. ágúst 2011

KOSNINGAR Í NEFNDIR OG RÁÐ

Nú vantar öflugt fólk í félagsstarfið í vetur.

Veittar eru einingar fyrir félagsstörf.

Um er að ræða eftirfarandi ráð og nefndir:

 

Nemendaráð – 5 einstaklingar

Túnráð – 5 einstaklingar

Árshátíðarnefnd – 5 einstaklingar

Skólanefnd – 1 einstaklingur og annar til vara

Skólaráð – 2 einstaklingar og einn til vara

Skólablað – 5 einstaklingar

Heimasíða NEF – 2 einstaklingar



Staðsetning:

Forsíða > að gerast

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík