Fréttir NEF
30. september 2010
Valáfangar á næstu önn kynntir í flýtileið á vef FSH
Allir valáfangar sem í boði eru á vorönn 2011 eru nú kynntir í flýtileið á heimasíðu FSH. Um er að ræða tólf áfanga af ýmsu tagi og eru nemendur eindregið hvattir til að kynna sér úrvalið. Vakin er sérstök athygli á því að vali á valáföngum verður að vera lokið 8. október.
20. september 2010
SKÓGARFERÐ NEF
Næsta miðvikudagskvöld ætlum við að skella okkur í skógarferð.
Við hittumst við Tún klukkan 20:00 og röltum saman upp í skóg
í rjóðrið þar sem eldstæðið er.
Þar mun NEF bjóða upp á sykurpúða og heitt kakó. Við elsdstæðið grillum við sykurpúða, syngjum nokkur vel valin lög
og heyrum kannski eina góða draugasögu!
Hvetjum alla til að mæta og eiga kósý stund með okkur í skóginum.
16. september 2010
Uppistand
Grínistarnir í Mið-Íslandi voru með uppistand fyrir nemendur FSH í hádeginu í gær í sal skólans.
Þeir sem komu fram voru Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóri DNA (barnabarn Nóbelskáldsins)og Jóhann Alfreð.







