Fréttir NEF
29. nóvember 2010
Kaffihúsakvöldið Gunna
Það er mjög löng hefð fyrir því að nemendafélagið haldi kaffihúsakvöldin Gunnu og Jón. Gunna var haldin síðastliðinn fimmtudag. Kvöldið hófst á því að myndböndin sem nemendur skólans sendu inn í Snilldarlausna keppnina voru sýnd. Síðasta myndbandið var vinningsmyndband ársins sem kom frá þeim Lilju Björk, Sigurveigu og Magneu og veitti Laufey skólastýra þeim viðurkenningu frá skólanum. Svo var nemendum boði uppá skúffuköku frá Heimabakarí áður en átök kvöldsins hæfust en stjórn nemendafélagsins var búin að útbúa quiz í tilefni kvöldsins. Það voru þær Sigrún Lilja og Líney sem unnu quizið með 20 stigum og fengu í verðlaun Húsavíkurgjafabréf. Allt í allt mjög vel heppnað og skemmtilegt kvöld.
19. nóvember 2010
Þokkalegur pappakassi
Viðtal við Lilju Björk Hauksdóttur sem var ein af þremur stelpum sem unnu Snilldarlausnir 2010 og fór suður til að taka á móti verðlaununum.
19. nóvember 2010
Nemendur úr FSH sigra í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni Framhaldsskólanna!
Þrír nemendur úr Framhaldsskólanum á Húsavík, þær Lilja Björk Hauksdóttir, Magnea Ósk Örvarsdóttir og Sigurveig Gunnarsdóttir, sigruðu í hugmyndasamkeppninni Snilldarlausnir Marel sem er haldin árlega í tengslum við Alþjóðlega athafnaviku.
Verkefnið að þessu sinni var pappakassi og höfðu þær vinkonurnar nýtt gamlan pappakassa sem geymslu fyrir prjónahnykkla á einfaldan og snjallan hátt.
Verðlaunin fyrir sigur í samkeppninni er 100 þúsund krónur sem borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, afhenti hönnuðunum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi.
Allur skólinn fagnar þessum tíðindum innilega og við óskum stúlkunum að sjálfsögðu til hamingju með þennan frábæra árangur!
Nánir upplýsingar um keppnina og úrslit hennar er að finna á snilldarlausnir.is og mbl.is
5. nóvember 2010
Hvað vilt þú sjá í skólablaðinu þínu?
Hvað vilt þú sjá í skólablaðinu þínu?
Þú getur haft áhrif á hvað þú munt sjá í skólablaðinu, aðeins með því að senda hugmynd til ritnefndarinnar. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Einnig er allt efni hvort heldur sem er um að ræða ljóð, ljósmyndir, teiknaðar myndir, brandarar, smásögur vel þegið.
Kv. ritnefndin – Brynja, Heiðdís, Líney, Sigrún Lilja, Sindri og Sonja.
29. október 2010
Prófkvíðanámskeið
Námsráðgjafi heldur prófkvíðanámskeið fyrir nemendur í nóvember. Námskeiðið er 4 skipti, um klukkutími í senn og er mikilvægt að mæta í alla tímana
19. október 2010
Fjólublár dagur
FJÓLUBLÁR DAGUR 20. OKTÓBER
20. október hefur verið tileinkaður baráttunni gegn fordómum







