Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir NEF

23. janúar 2009

PÍRAMUS OG ÞISPA KOMIÐ Á FULLT


Um þessar mundir eru að hefjast æfingar hjá leikfélagi Framhaldsskólans á Húsavík, Píramusi og Þispu á nýju leikverki eftir heimamanninn Snæbjörn Ragnarsson ...

16. janúar 2009

UNGMENNAHÚSIÐ - VIÐBURÐIR


Dagskrá Ungmennahússins fyrir næstu vikur er komin inn á vefinn ... greinilegt að þar er margt um að vera! Bandí, bíókvöld, spilakvöld, tekken og fleira fleira.

Opnunartímar eru öll mánudags- og fimmtudagskvöld. Sjá dagskrá.

12. janúar 2009

FSH Í GETTU BETUR


Hin árlega spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur er í kvöld á Rás 2 í beinni útsendingu þar sem lið FSH mætir liði Menntaskólans á Egilsstöðum. Í liði FSH eru Hilmar Örn Kárason, Guðrún Helga Ágústsdóttir og Pétur Ben.
Til að hita mannskapinn upp munu nemendur mæta liði kennara á sal skólans klukkan 12:00 en í liði kennara eru Herdís Þuríður Sigurðardóttir, Gunnar Árnason og Ingólfur Freysson.
Við hvetjum alla til að fylgjast með keppninni í kvöld.

9. janúar 2009

Brjálæðið byrjar aftur


Nú er vorönnin komin í gang og eflaust margir vel þéttir eftir allt jólaátið ;) Nýrri önn fylgja nýir áfangar og nýjum áföngum fylgja nýjar bækur svo ég tali nú ekki um að losna við gömlu bækurnar!

Hvað félagslífið varðar þá er margt framundan hjá NEF á vorönninni. Má þar helst nefna hina gríðarskemmtilegu Dillidaga með dillicup, söngvakeppni og öllu tilheyrandi sem síðan endar með árshátíð FSH ... en allt verður þetta auglýst þegar nær dregur!



Staðsetning:

Forsíða > að gerast

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík