Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir NEF

12. desember 2008

JÓLADISKÓ FSH


Það styttist óðum í hið langþráða jólafrí!!!

Eftir prófin þann föstudaginn 19. des verður haldið gríðarlegt jóladiskó í Skipasmíðastöðinni.

DJ Unnur mun sjá um að þeyta skífum og halda fjörinu gangandi frá 23-01.

16 ára aldurstakmark – frítt inn – að sjálfsögðu vímuefnalaust ;)

1. desember 2008

MEÐ EINDÆMUM VEL HEPPNAÐ KAFFIHÚSAKVÖLD


Kaffihúsakvöldið Gunna var haldið í sal Borgarhólsskóla síðastliðinn föstudag. Skemmtileg hefð hefur skapast í FSH fyrir slíkum kaffihúsakvöldum og höfðu nemendur og kennarar undirbúið sig grimmt vikurnar áður ....

24. nóvember 2008

GUNNA – KAFFIHÚSAKVÖLD


Gömul hefð er fyrir kaffihúsakvöldum í skólanum og eru haldin tvö á ári - Gunna á haustönn og Jón á vorönn. Nú er loksins komið að Gunnu og hafa nemendur og kennarar æft sín skemmtiatriði stíft síðastliðnar vikur ... 

Hvenær? Föstudagskvöldið 28. nóvember. Húsið opnað kl. 20:00 og dagskrá hefst kl. 20:30. 

Hvar? Í sal Borgarhólsskóla. 

Hvað? Gríðarlega spennandi skemmtiatriði í höndum nemenda og kennara FSH, í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur. Kaffihús verður á staðnum á vegum útskriftarnema FSH – sjoppan hf. Kaffi, kakó, gos, vöfflur, muffins og margt fleira ljúffengt! (Ath. enginn posi á staðnum). 

Fjölbreytt, gaman gaman, kósý að vera saman!

Sjáumst á Gunnu!

Nefndin

 

11. nóvember 2008

HVAÐ ER EVRÓVÍSIR?


Langar þig að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi?
Langar þig að kynnast nýju fólki í nýju landi?
Kynntu þér þá eftirfarandi síðu: http://www.euf.is/euf/evrovisir/

7. nóvember 2008

FYRIRLESTUR UM NOTKUN FÆÐURBÓTAREFNA


Á mánudaginn 10. nóvember n.k. koma tveir mastersnemar við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og halda stuttan fyrirlestur í hádeginu kl. 12:25 um notkun fæðubótaefna og lyfjanotkun í íþróttum ...

5. nóvember 2008

DAGSKRÁ UNGMENNAHÚSSINS Í NÓV


Dagskrá Ungmennahússins er kominn inn á vefinn og gríðarlega margt á döfinni á þeim bænum. Má þar nefna Tekken mót, Bandí street og síðast en ekki síst, LOTR maraþon! Kíktu við hérna.

28. október 2008

FERÐIN Í ÚRSLITIN


Við gátum ekki beðið um betra ferðaveður þegar við vorum að fara að leggja í hann, en við lögðum af stað í snjóbyl og veseni. Ferðin gekk ekki alveg eins greiðlega fyrir sig eins og við höfðum vonast eftir og þurftum við að yfirstíga nokkrar hindranir á leið okkar ...

23. október 2008

SÁ LJÓTI Á LAUGUM


,,Vægast sagt schnilllllld ....kossinn klárlega í uppáhaldi!”  Hrannar Bear Steingrímsson, nemi við FSH.

Í gær hélt góður hópur nemenda til Lauga á sýninguna ,,Sá ljóti”. Það var farandleikhús Þjóðleikhússins sem stóð fyrir sýningunni ...

21. október 2008

FSH Í ÚRSLITIN


Síðasta laugardag (18.okt.) fór fram Knattspyrnumót Framhaldsskólana í Boganum á Akureyri. Aðeins fór eitt lið fyrir hönd hins fagra FSH fyrst að ekki náðist í lið hjá stelpunum ...

16. október 2008

VEL HEPPNAÐIR LEIKAR Á LAUGUM


Á þriðjudaginn síðasta héldu um 50 manns frá FSH á Lauga til að etja kappi við Laugamenn í hinum ýmsu íþróttagreinum sem voru vægast sagt óvenjulegar ...



Staðsetning:

Forsíða > að gerast

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Framhaldsskólinn á Húsavík