Fréttir NEF
25. janúar 2007
Skíða - Brettaferðin mikla!!
Þá er komið að því, sem allir hafa beðið eftir!!!
Lagt verður af stað kl. 11:30 í skíða –brettaferðina miklu til Akureyrar, laugardaginn 27 janúar. Hægt er að leigja bretti/skíði á staðnum svo þið hafið engar afsakanir til að koma ekki með!! Ferðin kostar ykkur aðeins 1700 kr. (rúta + dagspassi).
25. janúar 2007
Dillicup 2007
Nú er komið að furðufuglum skólans til að láta ljós sitt skína!!!
Ef þið eruð til í harða keppni, mikinn hasar og frábæra skemmtun skráið ykkur þá á tilkynningatöflu skólans!!!
25. janúar 2007
Nefrennsli 2007
Nú er komið að söngfuglum skólans til að láta ljós sitt skína!!!
Við leitum að keppendum í söngvakeppnina okkar sem við kjósum um að kalla Nefrennsli...
19. janúar 2007
Snjóbretta og Skíðaferð!!
Okkur langar að fara með ykkur í skíða/snjóbrettaferð inná akueyri laugardaginn 27 janúar (ef veður leyfir) og langar að vita hversu marga langar að koma með?!?
Skráning hefur farið vel af stað og er skráningarblað á tilkynningartöflunni!!
10. janúar 2007
Gettu betur í kvöld!!
í kvöld kl. 19:30 fer fram viðureign Framhaldsskólans á Húsavík og Borgarholtsskóla í fyrstu umferð gettu betur. Viðureignin verður send beint út á RÁS 2!!! Fylgist með!!!







