Fréttir NEF
30. desember 2006
Dregið í gettu betur!!
Nú hefur verið dregið í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur og mætir lið FSH liði Borgarholtsskóla 10 janúar nk.
30. nóvember 2006
Þemadagur og Páll Óskar á Föstudag!!
Nk. Föstudag 1. des veður heljarinar húllumhæ! Þá verður þemadagur og er þemað að þessu sinni "dress up" og skulu allir mæta í fínum fötum í tilefni af degi íslenskrar tungu.
Um kvöldið verður svo gríðarlegt DJ set með DJ Páli Óskari í sal Borgarhólsskóla!
23. nóvember 2006
GUNNA á föstudag!!
Hin árlega Gunna, kaffihúsakvöld NEF verður haldið nk. föstudag 24 nóvember í sal Borgarhólsskóla. Herlegheitin byrjar kl. 20:30 með spurningakeppni þar úrslit úr spurningakeppni grunnskóla í Norðurþingi fara fram. Þarna verða einnig ýmis skemmtiatriði frá nemendum.
16. nóvember 2006
úrslit Quiz keppni NEF!
Í gærkvöldi (miðvikudag) fór fram geysiskemptileg keppni á vegum nef og túns en það var svokölluð Quiz keppni þar sem keppt var í spurningakeppni eftir fyrirmynd Quiz-leiksins á playstation. Þetta var að nokkru leiti gert til þess að hafa svipaða keppni fyrir stelpurnar eins og FiFA er að mestu eða öllu leyti spilaður af strákum í ár. En að sjálfsögðu voru strákar velkomnir í keppnina og voru þeir fjölmargir. Sigurvegararnir í ár voru þau Halldór Jón og Silja.
9. nóvember 2006
Wildcat FIFA meistarar!
Í gærkvöldi fór fram FIFA mót NEF samhliða videokvöldi og má með sanni segja að það var spennuþrungið loftið í skólanum í gær. Mótið einkendist af blóði, svita og tárum.
8. nóvember 2006
ALLT AÐ GERAST!!!
í þessari viku er heilmikið í gangi. í kvöld er hið gríðarvinsæla FIFA mót og ásamt því verður videokvöld... svo á föstudag verður Þemadagur!!
31. október 2006
FIFA 2007 mót!!!
Þá er komið að því sem allir hafa beðið með eftirvæntingu eftir. Hið geysivinsæla FIFA mót verður haldið miðvikudaginn 8 nóvember!! Skráning stendur yfir á töflunni!
16. október 2006
Úrslit framhaldsskólamótsins!
Um helgina var haldið framhaldsskólamótið í fótbolta. FSH sendi 3 lið til akureyrar til að keppa í undanriðlum mótsins, tvö karlalið og eitt kvennalið.
15. október 2006
Ert þú næsti þáttarstjórnandi Fm 103?
Krakkar ATH !!
Orðheppnir eintaklingar sem hafa áhuga á útvarpsgerð býðst hér ÓTRÚLEGT & EINSTAKT tækifæri til að byrja ferilinn og láta ljós sitt skína!!!
12. október 2006
Framhalsskólamótið í Fótbolta
Framhaldsskólamótið í fótbolta (undankeppni á akureyri)
Þá er komið að því...DADDARAMM... fótbolta unnendur FSH fá að láta ljós sitt skína...í nýja búningnum fína nk. helgi þegar haldið verður til akureyrar í undankeppni framhaldsskólamótsins í fótbolta







