Fréttir NEF
25. janúar 2012
Skíða- og brettakvöld NEF

Neflimir nýttu sér kjörið tækifæri til að skíðast og brettast þegar stjórn NEF bauð í fjallið í kvöld. Færið var gott að sögn reyndra manna og veðrið fínt en svolítið kalt. Harðjaxlar létu það ekki stoppa sig og skíðuðu og brettuðu eins og enginn væri morgundagurinn. Sjá myndaalbúm.
25. janúar 2012
Bóndi FSH

Stjórn NEF hélt upp á bóndadaginn sl. föstudag. Í tilefni dagsins var boðið uppá þorramat og karlmenni skólans tókust á í reiptogi og sjómann. Þá voru nemendur, sérstaklega þó karlmenn, hvattir til að mæta í þjóðlegum klæðnaði, lopapeysum, lopasokkum eða öðru tilheyrandi. Bóndi skólans var svo hylltur í lok dags og leystur út með gjöf, en hann fékk glænýja og fína gúmmískó. Það var enginn annar en Arnór Elí Víðisson sem sæmdur var titlinum Bóndi FSH 2012. Sjá myndir í myndasafni.
19. janúar 2012
Bóndadagur NEF
Á morgun er hinn rammíslenski bóndadagur. Af því tilefni ætla NEFlimir að gera sér glaðan dag, allir eru hvattir til að mæta í lopapeysum eða einhverju þjóðlegu. Karlmenn fá gott í gogginn og Bóndi NEF verður verðlaunaður.
19. janúar 2012
Siggi Illuga leikstýrir P&Þ
Þá er leikfélagið komið á fullt, búið að ráða Sigga Illuga sem leikstjóra og setja á upp hinn stórskemmtilega Gauragang. Um 25 nemendur ætla að vera með í leikfélaginu á þessari önn. Fyrsti samlestur er í skólanum á morgun kl. 14:00. Ef einhverjir vilja vera með er hægt að heyra í stjórnarmeðlimnum Önnu Jónínu, Ingu Ósk eða Jóhönnu Margréti.
13. janúar 2012
MRingarnir hraðmæltu of erfiðir
Okkar menn Andri, Fannar og Hafþór, stóðu sig með glæsibrag gegn ósigrandi og hraðmæltu liði MRinganna. Okkar menn voru skýrmæltir og stóðu sig eins og hetjur. Húrra fyrir þeim :D
13. janúar 2012
Píramus og Þispa af stað
Nú er Píramus og Þispa, leikfélag NEf, að vakna upp af dvala. Í fyrra vetur var leikfélagið í samstarfi við LH í sýningunni Að eilífu. Í vetur ætlar leikfélagið að sýna á eigin vegum. Búið er að . . .
9. janúar 2012
FSH í Gettu betur
Næst komandi miðvikudag, 11. janúar, mætir lið FSH aldrei þessu vant MR-ingum í spurningakeppninni Gettu betur. Við erum að verða vön því að vera dregin út á móti MR og skorumst ekki undan því. Þar sem ekki hefur verið sérstakur áfangi í boði í vetur sem undirbúningur fyrir Gettu betur ákvað stjórn NEF að leita til útskriftarnema með fulltrúa til að keppa fyrir okkar hönd.
2. desember 2011
Jólavist
Í gær komu nemendur saman í sal skólans og spiluðu félagsvist. Það var Hafþór Mar sem koma með þessa frábæru hugmynd og nokkuð ljóst að nemendur þurfa að gera miklu meira af því að hittast og grípa í spil. Menn stóðu sig þó
25. nóvember 2011
Kaffihúsakvöldið Gunna
Gunna er orðinn fastur liður í félagslífi NEFlima FSH og er í umsjón NEF stjórnar en Túnráð aðstoðaði stjórnina í ár. Í gærkvöldi var Gunna haldin í sal FSH og hefur sjaldan verið glæsilegri. Mjög fjölbreytt dagskrá var í boði: Tískusýning í umsjóna áfangans Tíska, húð og hár,
16. nóvember 2011
Dagur íslenskrar tungu
Nemendur komu saman á sal í dag í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Dagskráin var í höndum nemenda og umsjón hafði Dóra Ármannsdóttir. Það kom ekki á óvart að nemendur stóðu sig mjög vel og það sem m.a. var á dagskrá var upplestur á ljóðum eftir þekkt skáld sem lesin voru af mikilli tilfinningu, frumsamið ljóð eftir Fannar Frey og flott tónlistaratriði þar sem líka var flutt frumsamið efni í boði Axels, Brynjars og Gunnars Inga og mátti heyra nemendur og starfsfólk raula Fýlupúkann og Hvalinn Val á göngunum að dagskrá lokinni. Það er nokkuð ljóst að það þarf að kalla nemendur oftar saman á sal þar sem listamenn í þessum skóla fá tækifæri til að skemmta okkur hinum. Hægt er að sjá myndir í myndasafni skólans frá þessari flottu dagskrá.







