Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Skólasóknarreglur

Frjáls mæting

Undanþága frá íþróttum

P-nám

Utanskólanám


Meginregla:
  Nemendur skulu sækja allar kennslustundir stundvíslega.

Veitt er ákveðið svigrúm frá þessari meginreglu sem hér segir:

Heildarskólasókn nemenda má ekki vera undir 90%.

Skólasókn í hverjum einstökum áfanga má ekki vera undir 85%.

Leyfi frá skólasókn getur skólameistari og aðstoðarskólameistari gefið ef sérstakar ástæður liggja að baki.  Öðrum er ekki heimilt að veita leyfi frá mætingu, hvorki til lengri eða skemmri tíma.

Viðverumerkingar í kennslustundum:
M = sjálfgefinn viðverukóði, nemandinn er í tímanum.
F = fjarvist úr 60 mínútna tíma. Gefur 1 fjarvistastig.
G = fjarvist úr 40 mínútna tíma. Gefur 0,67 fjarvistastig.

ATH.: Komi nemandi of seint í kennslustund, þ.e. eftir að kennari er búinn að lesa upp og kennsla er hafin, telst nemandinn fjarverandi þá kennslustund.

Frádráttarliðir fjarvista:
V = veikindi
L = leyfi
A = töfluárekstur

Það svigrúm sem nemendur hafa skv. skólasóknarreglum geta þeir nýtt t.d. ef þeir þurfa nauðsynlega að bregða sér frá. 

 

Reglur um tilkynningar og skráningu veikinda við FSH settar 20. sept. 2007

1. Tilkynningar um veikindi skulu berast til skólaritara á milli kl 8 og 9 þann morgun sem nemandinn er veikur. Tilkynningar, sem berast á öðrum tíma, eru ekki teknar til greina

2. Veikindi nemenda sem ekki hafa náð 18 ára aldri skulu tilkynnt af forráðamanni.

3. Verði nemendur uppvísir að því að misnota rétt sinn til fjarvista vegna veikinda skal breyta veikindaforföllum í fjarvist. Þessir nemendur skulu til loka yfirstandandi annar framvísa læknisvottorði á fyrsta degi eftir að veikindum lýkur. Vottorð sem berast síðar verða ekki tekin til greina.

4. Skólanum er heimilt að krefjast læknisvottorða vegna langtíma veikinda.  Langveikum nemendum er bent á að hafa samband við stjórnendur skólans í upphafi annar.

Nemendum skal gefin einkunn í prósentum fyrir skólasókn. Skólasókn er ekki metin til eininga.

Í Aðalnámskrá er sérákvæði um undanþágur frá skólasókn fyrir fatlaða nemendur og afreksfólk í íþróttum.

 

Viðurlög: 
Nái nemandi ekki tilskilinni skólasókn í einum áfanga (þ.e. 85%) er litið svo á að hann hafi þar með sagt sig úr þeim áfanga.  Fær hann þá skráða einkunnina H (hættur) fyrir áfangann í námsferil sinn.  Fari nemandi niður fyrir leyfilegt lágmark í heildarskólasókn (þ.e. 90%) er litið á það sem úrsögn úr skólanum.  Nemendur sem hafa sagt sig úr einstökum áföngum eða skóla vegna fjarvista hafa ekki leyfi til þess að þreyta próf í lok annar.

 

Meðferð mála: 
Ef útreikningar á fjarvistum benda til þess að nemandi segi sig frá skóla með sama áframhaldi skal senda honum áminningarbréf eða foreldrum/forráðamönnum ef nemandi er yngri en 18 ára. Segi nemandi sig úr skóla og/eða áfanga vegna brota á skólasóknarreglum ber að tilkynna honum það skriflega.  Nemandinn hefur tímabundinn andmælarétt.  Að auki getur nemandi sótt um undanþágu frá skólasóknarreglum til skólaráðs.

 

Frjáls mæting.

Þeir nemendur sem fá frjálsa mætingu hafa heimild til að sleppa kennslustund ef það er óhjákvæmilegt.  Hjá þeim nemendum er ekki haldið fjarvistabókhald.  Sótt er um frjálsa mætingu til aðstoðarskólameistara í fyrstu viku hverrar annar.

Eftirfarandi nemendur geta sótt um frjálsa mætingu:

Nemendur sem náð hafa 21 árs aldri.  Aldurinn heimilar hins vegar ekki sjálfkrafa frjálsa mætingu.

Nemendur sem af sérstökum ástæðum telja sig ekki geta uppfyllt 90% skólasókn.

Nemendur sem eru 18-20 ára og skrá sig í að hámarki 10 einingar á viðkomandi önn.

Allir nemendur sem sækja um frjálsa mætingu þurfa að tilgreina ástæður umsóknar.

Frekari ákvæði um nemendur með frjálsa mætingu:

  1. Nemendur og kennarar gera samning um verkefnaskil og námsmat. Skyldur nemenda ráðast af samningi þessum.
  2. Kennari þarf ekki að koma upplýsingum sérstaklega til nemenda.
  3. Nemendur eiga að mæta undirbúnir í hvern þann tíma sem þeir sækja.
  4. Þeim er bent á að vera með tengilið úr hópi nemenda í hverjum áfanga.

Athygli er vakin á því að sumir áfangar eru þess eðlis að ekki er hægt að heimila frjálsa mætingu í þeim.  Þar má nefna íþróttir, skyndihjálp og lífsleikni.

 

Undanþágur frá íþróttaáföngum.

Nemendur á fjórða ári með 6 einingar eða minna hafa heimild til þess að sleppa íþróttum á síðustu önninni að því tilskyldu að þeir uppfylli skilyrði um einingafjölda á brautinni.

Nemendur sem náð hafa 20 ára aldri og sækja reglulega tíma í líkamsrækt hjá menntuðum íþróttakennara, í að minnsta kosti 80 mín á viku geta fengið það metið sem íþróttaeiningu, þó aldrei meira en eina einingu á önn.

 

P-nám.

P-áfangar kallast þeir áfangar þar sem nemandi þreytir próf án tímasóknar. 

Nemendur, sem náð hafa einkunninni 8 eða hærra í undanfara, geta sótt um p-áfanga.  Nemandi getur þó aldrei tekið meira en 6 einingar í p-námi á önn.

Enn fremur er hægt að sækja um p-nám ef sýnt er að áætluð námslok frestist að öðrum kosti og nemandinn hefur almennt staðið sig vel í námi að öðru leyti.

Að svo stöddu er eingöngu hægt að sækja um p-nám vegna námsloka.

Sótt er um p-áfanga til áfangastjóra í fyrstu viku hverrar annar.

Nemandi fær í upphafi annar vinnuáætlun frá kennara, þar sem fram koma upplýsingar um námsefni, námsmat og verkefnaskil.  Um nemendur í p-námi geta gilt aðrar reglur varðandi þessi efni en hjá öðrum nemendum.

P-nemanda er skylt að hafa samband við kennarann í upphafi annar og skipuleggja nám sitt í samráði við hann.  Nemandinn skal ætíð hafa frumkvæði að því að hitta kennarann.

Athygli er vakin á því að sumir áfangar eru þess eðlis að ekki er unnt að leggja stund á þá án tímasóknar.

 

Utanskólanám.

Skólameistari getur veitt nemanda heimild til að stunda nám sitt utan skóla.  Um utanskólanemendur gilda sömu námskröfur og um aðra nemendur skólans.  Utanskólanemendur fá að jafnaði ekki að sækja kennslustundir nema um sé að ræða verkefni sem þeim er skylt að vinna í kennslustund. Þeir skulu standa skil á verkefnum, skýrslum og ritgerðum í samráði við kennara.  Sumar greinar eru þess eðlis að ekki er hægt að stunda nám í þeim utan skóla. 


Stađsetning:

Forsíđa > Námiđ > Skólasóknarreglur

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH