Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Prófareglur

Öll venjuleg próf taka eina og hálfa klukkustund.

Nemendur skulu koma stundvíslega til prófs og athuga á auglýsingatöflu skólans hverju sinni hvar þeim er ætlaður staður í prófinu. Komi nemandi of seint til prófs skerðist próftími hans sem því nemur. Komi nemandi meira en einni klukkustund of seint til prófs hefur hann glatað rétti sínum til að þreyta prófið.
Við skrifleg próf má nota þau gögn sem tilgreind eru á forsíðum prófa. Kennarar skulu vera búnir að kynna fyrir nemendum sínum leyfileg hjálpargögn fyrir prófið. Nemendum er óheimilt að veita eða þiggja hjálp meðan á próftöku stendur. Við brot á þessum ákvæðum skal vísa nemanda frá próf þegar í stað og leggja mál hans fyrir skólaráð, og geta viðurlög varðað brottvikningu úr skóla.
Prófverkefni skulu liggja á borðum þegar próf hefst.
Kennarar í prófgreinum skulu vera viðstaddir og koma a.m.k. tvisvar í hverja prófstofu meðan á prófi stendur.

Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en eftir eina klukkustund. Þegar prófi lýkur þá skulu þeir nemendur sem eftir eru skila prófverkefni til yfirsetumanns og yfirgefa prófstofu tafarlaust.
Sé nemandi veikur á prófdegi skal hann tilkynna það áður en próf hefst.

Sjúkrapróf fara fram innan tveggja vikna frá reglulegu prófi í áfanganum. Þeir einir fá að taka sjúkrapróf sem leggja fram fullgild læknisvottorð um forföll sín eða gera á annan hátt gein fyrir þeim á fullnægjandi hátt, ef ekki er um veikindi að ræða. Sækja ber um sjúkrapróf til áfangastjóra.

Nemendur eiga rétt á að skoða prófúrlausnir sínar í viðurvist kennara í síðasta lagi innan þriggja daga frá afhendingu einkunna. Ef fram kemur skekkja í mati eða einkunnagjöf skal slíkt leiðrétt strax. Ef nemandi telur að hann hafi verið beittur órétti getur hann kært niðurstöður prófs til skólameistara sem þá kallar til óháðan prófdómara. Niðurstaða hans skal standa.

Endurtektarpróf fyrir 3ja og 4ra ára námsbrautir.

Nemandi, sem fellur á prófi, hefur rétt á að þreyta endurtektarpróf að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þau eru:
1. Nemandinn stundar nám á námsbraut þar sem meðalnámstími er 3 eða 4 ár.
2. Nemandinn hefur lokið helmingi eininga á brautinni.
3. Fallið í áfanganum verður óhjákvæmilega til þess að fresta námslokum nemandans (miðað við meðal námsframvindu).
4. Nemandinn hefur náð a.m.k. einkunninni 3 í áfanganum.
5. Nemandi getur aldrei þreytt fleiri en tvö endurtektarpróf á hverri önn.


Staðsetning:

Forsíða > Námið > Prófareglur

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH