Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Námsmat

Miðannarmat     Mat á félagsstörfum

 

Í Framhaldsskólanum á Húsavík er lögð áhersla á að námsmati taki til sem flestra þátta námsins. Námsmatið á að taka tillit til þekkingar, færni, skilnings og viðhorfa. Námsmatið skal vera í samræmi við markmið náms eins og þau eru sett fram í skólanámskránni. Æskilegt er að námsmatið sé fjölbreytt, til dæmis:

1. símat á öllum námstímanum

2. munnleg eða skrifleg yfirlitspróf námsáfanga

3. mat á verkefnum og vinnuferli

4. sjálfsmat nemandans

Vægi þessara þátta getur verið misjafnt eftir áföngum. Einnig ber að meta hæfileika nemenda til samstarfs með öðrum, virkni í hópvinnu, frumkvæði, hugmyndaauðgi, sköpun, og sjálfstæði í vinnubrögðum. Símat á námstímanum á að vera upplýsandi fyrir nemanda og foreldra hans. Það gefur til kynna hvaða námsmarkmiðum hefur verið náð, hvað þurfi að bæta og hvaða leiðir nemandinn getur farið til að styrkja stöðu sína.

Vægi yfirlitsprófs í lok annar skal vera á bilinu 50-80% af endanlegu mati (lokaeinkunn). Í P og U áföngum getur vægi yfirlitsprófs verið 100%. Nánar skal kveðið á um vægi yfirlitsprófs og annarra námsþátta í kennsluáætlun. Einkunn á yfirlitsprófi skal ekki ráða því hvort aðrir námsþættir áfangans eru metnir samkvæmt kennsluáætlun. Við námsmat í verkefna- og verklegum áföngum er ekki krafist yfirlitsprófs í lok annar. Skólasókn skal ekki hafa sérstakt vægi í námsmati.

Gefa skal einkunnir í heilum tölum frá 1-10 og þarf nemandi að ná einkunninni 5 eða 45% námsmarkmiða til að teljast hafa lokið námsáfanga og öðlast einingar sem áfanginn gefur. Þá getur námsmat í áfanga einnig verið annað hvort staðið (merkt S í námsferli) eða fall (merkt F í námsferli). Nám frá öðrum skólum sem skólinn metur fær merkinguna M í námsferli. Kennarar meta úrlausnir nemenda og bera ábyrgð á námsmati.

 

Miðannarmat

Miðannarmat er mat kennara á stöðu nemenda í einstökum áföngum um miðja önn. Það er gefið í bókstöfum:

  • A   Nemandinn hefur staðið sig mjög vel í áfanganum. Með sama áframhaldi ætti hann að fá 9-10 í lokaeinkunn.
  • B   Nemandinn hefur staðið sig vel í áfanganumen gæti gert enn betur. Með sama áframhaldi ætti hann að fá 7-8 í lokaeinkunn.
  • C   Nemandinn hefur staðið sig sæmilega í áfanganum og þarf að taka sig á. Með sama áframhaldi ætti hann að fá 5-6 í lokaeinkunn.
  • D   Nemandinn þarf nauðsynlega að bæta sig. Með sama áframhaldi á hann á hættu að ná ekki lágmarkseinkunni í áfanganum.


Athugið að miðannarmat er EKKI hluti af annareinkunn.

Miðannarmat fer fram um miðjan október á haustönn en í lok febrúar á vorönn.

 

Mat á félagsstörfum og þátttöku í félagslífi á skólaári (tveimur önnum)

  1. Nemandi sem gegnir formennsku í nemendafélagi skólans NEF getur mest fengið  þrjár einingar metnar sem valeiningar á námsbraut. Nemendur sem sitja í stjórn  NEF geta mest fengið  tvær einingar.
  2. Stjórnir klúbba NEF (þó aldrei fleiri en þrír í hverjum klúbbi) geta fengið eina einingu.
  3. Nemandi sem leikur í leikriti eða tekur þátt í leiklistarnámskeiði á vegum Píramusar og Þispu fær það metið til eininga í áfanganum LEI173. Sama á við um hljóðfæraleikara, hvíslara, aðstoðarleikstjóra og aðra sem starfa við leiksýningar.
  4. Fyrir reglulega þjálfun og þátttöku í spurningakeppni framhaldsskólanna getur nemandi fengið allt að þrjár einingar.
  5. Fyrir þátttöku í undankeppni skólans í söngkeppni framhaldsskólanna getur nemandi fengið eina einingu og eina einingu fyrir þátttöku í landskeppninni.
  6. Nemandi sem æfir reglulega og syngur með skólakór fær það metið til einingar í áfanganum KÓR.
  7. Hægt er að sækja um einingar fyrir önnur störf og þátttöku í félagslífi en hér er upp talið, enda sé um að ræða félagslíf á vegum skólans eða í samstarfi við skólann.

Við lok skólaárs fjallar skólaráð um allar tillögur og umsóknir sem fram hafa komið um veitingu eininga samkv. liðum a-f hér að framan og kveður upp úrskurð sinn. Enginn skal fá einingu metna nema hann hafi sannanlega unnið fyrir henni. Skólaráð getur kallað stjórn NEF og umsjónarmann félagsstarfs nemenda til samráðs við sig og sett nánari reglur ef þurfa þykir.


Stađsetning:

Forsíđa > Námiđ > Námsmat

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH