Skólaliðabraut SK - brú
Í námi og kennslu aðstoðarfólks í leik- og grunnskólum er áhersla lögð á að búa nemendur undir að taka þátt í daglegu starfi á þessum skólastigum. Lokamarkmið námsins eru sett fram með hliðsjón af aðalnámsskrá leik- og grunnskóla og þeim lögum og reglugerðum sem tengjast þessum skólastigum. Í náminu er nemendum gefinn kostur á að takast við ákveðin störf í leik og fræðast um helstu atriði í uppeldi og kennslu. Stefnt er að því að nemendur fái innsýn í starfsemi leik- og grunnskóla og er leitast við að tengja saman hagnýta og fræðilega þætti námsins.
Námið er fyrir einstaklinga sem eru 22 ára og hafa að baki a.m.k. þriggja ára starfsreynslu og starfa enn við umönnun, uppeldi og menntun barna í leik- eða grunnskóla og hafa að auki lokið starfstengdum námskeiðum á vegum sveitarfélaga eða stéttarfélaga. Umfang námskeiða þarf að vera 220-230 stundir og skal það teljast jafngilda um 17 einingum af sérgreinum skólaliðabrautar. Nemendur eiga þess kost að fá fyrra nám metið ef það er sambærilegt við áfanga aðalnámskrár aðstoðarfólks í leik- og grunnskólum.
Kennslan fer fram síðdegis milli kl. 16:30 og 19:00 í skólanum eða í dreifnámi gegnum fjarfundabúnað eftir þörfum hverju sinni.
| Sérgreinar | 22 ein. | |
| Fötlun | FÖT103 | 3 ein |
| Leikur náms og þroska | LEN103 | 3 ein |
| Matur og næring | MON102 | 2 ein |
| Samskipti og samstarf | SAS113 | 3 ein |
| Skyndihjálp | SKY101 | 1 ein |
| Uppeldisfræði | UPP103, 203 |
6 ein |
| Þrif og umsjón | ÞRI101 | 1 ein |
| Þroski og hreyfing | ÞRO103 | 3 ein |
| Starfsþjálfun | 3 ein. | |
| Starfsþjálfun | STG103 | 3 ein |
| Samtals einingar | 25 ein. | |







