Félagsliđabraut, FL - brú
Hlutverk náms á Félagsliðabraut er að búa nemendur undir störf sem hafa að markmiði að aðstoða, veita umönnun og styðja þá sem þess þurfa í heimahúsum og á stofnunum. Um er að ræða fjögurra anna nám í skóla auk fjögurra mánaða starfsþjálfunar í heimaþjónustu eða á stofnunum. Námið á að veita nemendum góða undirstöðuþekkingu til starfa á sviði félagsþjónustu og umönnunar.
Nám og kennsla á félagsliðabraut – brú er skipulagt samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins, fyrir einstaklinga sem eru orðnir 22ja ára og hafa a.m.k. 3ja ára starfsreynslu. Að auki þurfa þeir að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila sem sjá um námskeiðahald. Umfang námskeiða þarf að vera 220 til 230 stundir og skal það teljast jafngilda um 17 einingum af sérgreinum félagsliðabrautar. Formlegt nám við framhaldsskóla er metið í samræmi við ákvæði aðalnámskrá framhaldsskóla sé það sambærilegt við það nám sem er í boði á brúnni.
Kennslan fer fram síðdegis milli kl. 16:30 og 19:00 í skólanum eða í dreifnámi gegnum fjarfundabúnað eftir þörfum hverju sinni.
| Sérgreinar | 43 ein. | |
| Aðstoð og umönnun | ASU104 | 4 ein. |
| Félagsfræði | FÉL103 | 3 ein. |
| Félagsleg virkni | FÉV102 | 2 ein. |
| Fjölskyldan og félagsleg þjónusta | FJF103 | 3 ein. |
| Heilbrigðisfræði | HBF103 | 3 ein. |
| Hjálpartæki | HJÁ101 | 1 ein. |
| Hússtjórn og matreiðsla | HÚS103 | 3 ein. |
| Líkamsbeiting | LÍB101 | 1 ein. |
| Lyfjafræði félagsliða | LYF113 | 3 ein. |
| Næringarfræði | NÆR103 | 3 ein. |
| Sálfræði | SÁL123, 303 | 6 ein. |
| Samskipti | SAM112 | 2 ein. |
| Siðfræði | SIÐ122 | 2 ein. |
| Skyndihjálp | SKY101 | 1 ein. |
| Umsjón og öryggi | UMÖ101 | 1 ein. |
| Uppeldisfræði | UPP122 | 2 ein. |
| Viðbrögð við áföllum og sorg | VÁS102 | 2 ein. |
| Vinnan og vinnumarkaðurinn | VVM101 | 1 ein. |
| Val | 7 ein. | |
| Nemendur geta valið um eða tekið hvort tveggja: | ||
| Öldrunarferli | ÖLD105 | 5 ein. |
|
Samfélagsþjónusta aldraðra |
SFA102 | 2 ein. |
| eða | ||
| Fötlun | FTL103 | 3 ein. |
| Fötlun og samfélag | FOS104 | 4 ein. |
| Vinnustaðanám | 16 ein. | |
| Þriggja ára starfsreynsla |







