Ađ komast inn á Innu
Til að komast inn á vef Innu þarf:
1. Notendanafn (prentað á stundatöfluna þína)
2. Lykilorð sem þú færð hjá ritara
3. Vafra sem styður 128 bita dulkóðun
Algengustu ástæður þess að nemendur komast ekki inn:
1. Lykilorð vitlaust skrifað. Lykilorðin sem Inna gefur út eru flókin og þarf að passa sig á að skrifa þau nákvæmlega. Dæmi: X4t,6Hi:wE4
Hér gæti fólk t.d. gleymt kommunni, hún er hluti af lykilorðinu.
Ţegar inn er komið borgar sig að breyta lykilorðinu í eitthvað sem gott er að muna.
2. Vafrinn styður ekki 128 bita dulkóðun. Í Internet Explorer gæti t.d. komið "This page cannot be displayed". Uppfærið vafrann (og helst líka stýrikerfið) í botn eða prófið aðra vafra, svo sem Opera eða Firefox.
3. Aðgangur notanda lokaður. Hafið samband við áfangastjóra til að tryggja að svo sé ekki.
Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára geta fengið aðgang að Innu. Þeir sækja sér lykilorð í gegnum "gleymt lykilorð" (sjá lýsingu hér að neðan) og fá sent nýtt lykilorð á netfang forráðamanns sem skráð var í Innu þegar sótt var um skólann. Forráðamaður notar eigin kennitölu.
Ef netfangið er ekki rétt í Innu (gildir bæði um forráðamann og nemandann) skal senda tölvupóst til ritara með ósk um að fá netfang skráð í Innu. Tölvupóstinn verður að senda úr netfanginu sem skrá skal sem netfang í Innu.
Athugið vel að nú er hægt að sækja gleymt lykilorð á login síðu Innu. Ţá er smellt á "Gleymt lykilorð" efst til hægri og gefa svo upp kennitölu og skóla. Til að Inna geti sent lykilorðið þarf netfang að vera gefið upp í persónuupplýsingum í Innu.







