Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fjarnám

Verðskrá fjarnáms         Mögulegir áfangar í fjarnámi á vorönn 2012

Markmið

Markmiðið með því að bjóða upp á fjarnám er að gefa sem flestum kost á að stunda framhaldsnám óháð staðsetningu og tíma.

Námsfyrirkomulag

  • Fjarnám í FSH er að mestu leyti nám á netinu og eru áfangar settir upp á kennsluvefnum Moodle.
  • Ekki er um að ræða eiginlega fjarnámsáfanga, heldur er boðið upp á flesta þá áfanga, sem kenndir eru í dagskóla á viðkomandi önn, í fjarnámi.
  • Ekki er sett hámark einingafjölda, sem hægt er að taka á hverri önn, en bent er á að þriggja eininga áfangi samsvarar u.þ.b. 9 klukkustunda vinnu á viku.
  • Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara.  Það krefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara.  Sjálfsagi er mikilvægur þar sem fjarnám er að hluta til sjálfsnám, þar sem ekki er hægt að fá svör frá kennurum strax og spurningar vakna.  Það er því mikilvægt að lesa allar leiðbeiningar vel, hafa tímasetningar í heiðri og leysa öll verkefni, sem fyrir eru lögð.  Vakni spurningar, sem ekki eru svör við í námsumhverfinu (kennsluvefnum), er hægt að senda fyrirspurn til kennara og ber honum að svara eigi síðar en annan virkan dag.
  • Athygli er vakin á því að þar sem eingöngu er boðið upp á fjarnám í áföngum, sem verið er að kenna hverju sinni, er fjarnámsnemum heimilt að sækja tíma ef/þegar þeir geta.
  • Að öðru jöfnu er fjarnám þó ekki ætlað nemendum í hefðbundnu dagskólanámi.

Samskipti

Samskipti við kennara fara fram í Moodle og tölvupósti.  Í Moodle er að finna námsáætlanir, verkefni, próf og fleira, sem máli skiptir í náminu.  Enn fremur eiga nemendur þess kost að hitta kennara eftir nánara samkomulagi þar um.  Slíkir fundir eru þó ekki ætlaðir til einkakennslu.

Námsefni

Bókalista má nálgast á heimasíðu skólans.

Nemendur þurfa að:

  • hafa daglegan aðgang að internettengdri tölvu með vafra, sem les Moodle umhverfið án vandkvæða.
  • hafa lágmarkskunnáttu í tölvunotkun, þ.m.t. ritvinnslu.
  • hafa nokkra æfingu í að nota veraldarvefinn og í framhaldi af því að geta tileinkað sér að vinna í Moodle kennsluumhverfinu.  Þar eru m.a. bókalistar, námsáætlanir, verkefni, gagnvirk próf og ítarefni allra áfanga, sem kenndir eru í fjarnámi hverju sinni.
  • hafa tíma til að stunda námið.  Einingafjöldi áfanga er þriðji tölustafurinn í númeri hans.  T.d. er ENS103 þrjár einingar og STÆ102 er tvær einingar.  Almennt er reiknað með að tíminn talinn í klukkustundum, sem þarf til fjarnámsins á viku, sé sú tala, sem kemur út þegar einingafjöldinn er margfaldaður með þremur.  Þannig er vinna við þriggja eininga áfanga áætluð 9 klukkustundir á viku en 6 við tveggja eininga áfanga.

Mat á fyrra námi

Fjarnámsnemendur, sem óska eftir mati á fyrra námi, skulu hafa samband við áfangastjóra.

Fyrstu skrefin

  • Þegar heimsendur greiðsluseðill hefur verið greiddur eru aðgangs- og lykilorð að Moodle send í pósti ásamt leiðbeiningum um að komast inn í kerfið og inn í áfangana.  Skrifstofa skólans skráir alla nemendur skólans inn í sína áfanga í annarbyrjun.  Þegar því er lokið er nemandinn kominn inn á það svæði, þar sem samskiptin við kennarann fara að mestu leyti fram.  Þessu ferli ætti að vera lokið áður en kennsla hefst.  Nemendur, sem skrá sig í fjarnám eftir að kennsla hefst, ættu að vera komnir með aðgang eftir tvo virka daga frá því að greiðsla berst.
  • Hver kennari setur tímaramma til verkefnaskila og ber að virða hann.  Fjarnemar fá ekki lengri tíma til verkefnaskila en dagskólanemendur í sama áfanga.

Námið

Verklagsreglur kennara

  • Kennari á að setja fram kennsluáætlun, sem inniheldur m.a. markmið áfangans og áætlaða yfirferð. Það er í höndum hvers kennara hversu nákvæm áætluð yfirferð er.
  • Kennari á að hafa samband við fjarnemendur reglulega.
  • Kennara ber að setja námsefni fram á aðgengilegan hátt og leitast við að útskýra það fyrir nemendum á eins skýran hátt og honum er unnt. Einnig skal hann vísa nemendum á hvar ítarefni er að finna, fari hann út fyrir námsefnið eins og það er í aðalkennslubók(um) áfangans.
  • Kennari á að meta frammistöðu nemenda fyrir skil á verkefnum með einkunnum og/eða skriflegum umsögnum, sem fela í sér leiðréttingar, leiðbeiningar og útskýringar.
  • Kennari á að svara fyrirspurnum nemenda innan tveggja virkra daga. Kennari skal þó hafa lengri tíma ef um stærri verkefni/ritgerðir er að ræða. Ef kennari metur ekki verkefni strax skal hann gera nemendum ljóst hvenær þeir eiga von á námsmati.

Verklagsreglur fjarnámsnemenda

  • Nemanda ber að lesa kennslu-/námsáætlun ítarlega í upphafi.
  • Nemanda ber að fara inn í Moodle kennsluumhverfið á netinu eins oft og kennarinn leggur til og hlest ekki sjaldnar en vikulega.
  • Nemandi á að virða þær reglur, sem kennari setur um verkefnaskil.
  • Nemandi á að láta kennara vita ef hann getur ekki skilað verkefni á tilsettum degi og biðja þá um frest.  Athygli er vakin á því að ekki er hægt að biðja um frest EFTIR að auglýstur lokafrestur er liðinn. Kennara ber ekki að veita lengri skilafrest en geri hann það er sá frestur endanlegur.
  • Nemandi á að láta kennara og áfangastjóra vita ef hann ætlar að hætta námi í áfanganum.
  • Nemendur eru hvattir til að senda fyrirspurnir til kennara í tölvupósti eða Moodle.
  • Tæknilegum vandamálum svarar skrifstofa skólans, sími 4641344.

Námstími - lokapróf

  • Haustönn er frá ágústlokum fram að jólum. Vorönn er frá janúarbyrjun til maíloka.
  • Lokapróf fara fram í Framhaldsskólanum á Húsavík samhliða öðrum prófum í desember og maí.
  • Prófastaðir fjarnámsnemenda geta verið aðrir en í FSH en þeir þurfa að sækja um það til prófstjóra ef þeir þurfa að taka prófin annars staðar.  Prófstjóri sér svo um að hafa samband við þá skóla, þar sem nemendur óska eftir að taka prófin.  Nemendur erlendis skulu hafa samband við næsta sendiráð, konsúl eða skóla, sem er tilbúinn að aðstoða þá.  Þar þarf að útvega ábyrgðarmann, sem tekur við prófum í tölvupósti, leggur þau fyrir og sendir úrlausnir tli baka.  Sama gildir um nemendur, sem eru á sjó á prófatíma en í þeim tilvikum getur t.d. skipsstjóri verið ábyrgðarmaður.
  • Prófareglur FSH gilda á öllum prófstöðum eftir því sem við á. Veikindi skal tilkynna bæði til skrifstofu FSH og ábyrgðarmanns á prófstað ef hann er annar.


Stađsetning:

Forsíđa > Námiđ > Fjarnám

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH