Áfangastjóri
Áfangastjóri hefur umsjón með rekstri áfangakerfisins og sér um skráningu upplýsinga um nemendur sem innritast í skólann. Hann heldur utan um fjarvistarskráningu og námsferilsskrár nemenda, auk þess að hafa yfirumsjón með námsvali þeirra í samráði við námsráðgjafa skólans og umsjónarkennara. Áfangastjóri sér um töflugerð og framkvæmd prófa.
Áfangastjóri ritstýrir Húslestri sem er fréttablað skólans og er einnig að finna hér á vefnum.
Tölvupóstfang áfangastjóra: brl hjá fsh.is
Viðtalstímar áfangastjóra vorönn 2010:
Mánudaga kl. 13:00-15:00
Miðvikudaga kl. 10:20 - 12:00
Föstudaga kl. 10:20-12:00
Á öðrum tímum skv. samkomulagi







