Undanfarareglur FSH
Almenn regla:
- Fyrsti tölustafur í áfanganúmeri segir til um röð áfanga, t.d. er ÍSL103 undanfari ÍSL203.
- Ef tveir eða fleiri áfangar hafa sama tölustaf fremstan í áfanganúmeri hafa þeir sama undanfara, t.d. má taka STÆ313 á undan STÆ303 svo framarlega sem nemendur eru búnir með STÆ203 eða hægferðarkeðjuna.
Undanfarareglur hægferða:
- Íslenska og enska: Röðin er 102 – 202 – 212
- Stærðfræði: Eftirtaldar raðir eru leyfilegar:
102 – 122 – 202
102 – 202 – 122
122 – 102 – 202
NÁT áfangarnir:
NÁT103 er undanfari á LÍF103, LÍF113 og LOL103
NÁT113 er undanfari á JAR103
NÁT123 er undanfari á JAR103, EFN103, EÐL103 og LOL103
Sértækar reglur:
- Eðlisfræði: Gerð er krafa um að nemendur hafi lokið STÆ303 áður en þeir taka EÐL203, enn fremur er æskilegt að nemendur lesi STÆ403 samhliða eða hafi lokið honum.
- Líffræði: EFN103 er undanfari á LÍF103 ásamt NÁT103.
- Undanfarareglur séráfanga sjúkraliðabrautar: Sjá vef Menntamálaráðuneytisins.
- Íslenska: Eftir ÍSL303 má taka 503 á undan 403
- Saga: Verkefnaáfangann SAG503 má taka á undan SAG403.







