Afreksíþróttir AFÍ - 112
Kennari: Ingólfur Freysson
Kennslustundir: 2 x 40 mín. tímar á viku.
Þjálfun: 4-6 æfingar með íþróttafélag + leikir
Kennslustaðir: Íþróttahöllin - Þreksalur Íþróttahallar og félagsaðstaða Völsungs
Áfangalýsing:
Áfanginn er samstarfsverkefni Framhaldsskólans á Húsavík og Íþróttafélagsins Völsungs og er ætlaður nemendum sem stunda sína íþrótt með það að markmiði að ná hámarksárangri í viðkomandi íþróttagrein.
Áhersla er lögð á grunnþætti s.s. þol, styrk, liðleika, samhæfing, snerpu og hraða. Framkvæmdar verða mælingar á flestum þessum þáttum. Nemendur eiga svo að geta nýtt sér þessar mælingar við það að setja sér markmið í þjálfuninni. Jafnframt verður fræðsla um næringu íþróttamanna, íþróttameiðsli, lyfjamál og markmiðssetningu. Fyrirlestrum/fræðslu verður fléttað inn í þjálfunina. Þennan hluta mun íþróttakennari/þjálfari auk sérfræðingar hafa umsjón með.
Áhersla verður á að nemandi bæti sig líkamlega og andlega í sérhæfðari þjálfun í sinni íþróttagrein. Sérhæfðari tækniþjálfun í viðkomandi íþróttagrein fer fram undir stjórn íþróttaþjálfara nemenda.
Markmið áfangans eru að nemandinn:
• bæti líkamlegt ástand sitt til þess þannig að hann standi sem bestu undir þeim kröfum sem íþróttin gerir,
• bæti tækni sína í íþróttinni,
• læri að setja sér raunhæf markmið á öllum sviðum afreksþjálfunar,
• tileinki sér þann lífstíl sem þarf til þess að standast kröfur um afreksþjálfun.
Skyldur nemenda eru:
• að vera virkur iðkandi í íþróttafélagi – staðfesting íþróttafélags á virkni er nauðsynleg.
• að mæta í 90 % kennslustunda áfangans.
• að vera góð fyrirmynd annarra er varðar heilbrigðan lífsstíl. Neysla áfengis, tóbaks (þar með talið munntóbaks) og annarra vímuefna er ekki liðin.
Brot á mætingakröfum og neyslu tóbaks/vímuefna leiðir til brottvísunar úr áfanganum.
Fyrirkomulag:
Námið gefur 2 einingar á önn. Nemendur mæta í 2x í 40 mín. kennslustundir á viku í íþróttatíma skólans og ástunda æfingar sem þjálfari gerir í viðkomandi íþróttagrein (4-6 æfingar á viku).







