Húslestur
2. september 2010
OpenOffice í tölvum skólans
Í tölvum skólans er fjölvinnsluforritið OpenOffice en ekki Microsoft Office. Þetta þýðir að ef t.d. Word skjöl hafa endinguna .docx er ekki hægt að opna þau. Tvær lausnir eru mögulegar:
1. Að vista skjölin með endingunni .doc
Þetta er gert með því að velja "Save as ..." og velja þar .doc af felliglugga.
2. Að sækja OpenOffice og nota það í stað MS Office.
Hafið samband við Pál Kerfisstjóra ef þið þurfið frekari aðstoð.







