Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 7. tbl. 2009

7. tbl. 19. árgangur.  Ritstjóri og ábyrgðarmaður:  Björgvin R. Leifsson

1. Fjarvistir, 2. talning

2. Val fyrir vorönn 2010.  Opnað hefur verið fyrir val í Innu.  Umsjónarkennarar aðstoða nemendur við val, enn fremur geta útskriftarnemar leitað til áfangastjóra.
Listi yfir áfanga í boði er hér, frestur til að skila athugasemdum til áfangastjóra rennur út miðvikudaginn 23. september.
Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Frestur til að skila inn vali í Innu rennur út miðvikudaginn 14. október.  Þeir sem ekki velja fyrir þann tíma verða ekki með í töflugerð fyrir vorönn 2010.  ATHUGIÐ BREYTTAN TÍMA!
Athugið að hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtal vegna vals, þar með talið í fundartíma á miðvikudögum.
Sérstakur umsjónartími vegna vals verður miðvikudaginn 7. október í stofum 1 og 2.  Þar munu umsjónarkennarar aðstoða við valið.
Upplýsingar um kjörsvið stúdentsbrauta er að finna hér.
Hér er að finna undanfarareglur.

Athugið vel breytingar á stúdentsbrautum og valframboði, sjá liði 3 og 4.  Þessar breytingar tóku glidi á síðustu önn og eru endurbirtar hér til hagræðis.

3. Breytingar á stúdentsbrautum. Sjá brautalýsingar félagsfræðibrautar og náttúrufræðibrautar
a) Á félagsfræðibraut flyst SÁL103 í kjarna og UPP103 bætist við.  Nemendur hafa nú val um að taka 2 áfanga af SÁL103, UPP103, REK103 og ÞJÓ103 í kjarna.
Hagfræði- og bókfærslukjörsviðin falla út.
SAG503 fellur niður en i staðinn kemur SAG183 (nútímaíslandssaga) í kjörsviðslínuna.
Kjörsviðsáfangarnir FÉL403 (aðferðafræði), UPP203 og UPP303 bætast við.
b) Á náttúrufræðibraut falla eftirtaldir áfangar út af kjörsviðslínum: EFN483, JAR383, LÍF303

4. Breytingar á valframboði.  Vegna fyrirsjáanlegs niðurskurðar í fjármálum framhaldsskólans verður framboð á P-áföngum minnkað tímabundið.
a) Ekki verður hægt að fá p-heimild í kenndum áföngum þó að skilyrði um einkunn í undanfara séu uppfyllt.
b) Ekki verður boðið upp á yndislestursáfanga að svo stöddu.
c) Verkefnaáfangar eins og SAG503, JAR383 og LíF303 falla tímabundið út (sjá þó lið 7 hér á eftir).

5. Brautaskipti.  Nemendur á 2. ári á almennri braut III, sem ætla á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangstjóra sem allra fyrst.

6. Útskrift vor 2010.  Þeir útskriftarnemar skv. auglýsingu á töflu við anddyri, sem eiga eftir að hafa samband við áfangastjóra þeurfa að gera það sem allra fyrst.  Nemendum á almennum brautum I og II er bent á að þeir geta einnig útskrifast af sínum brautum en þá verða þeir að hafa samband við áfangastjóra.

7. Alþjóðaverkefnið Ungir vísindamenn!  Áfangastjóri leitar eftir tveimur nemendum á 3. eða 4. ári til að taka þátt í verkefninu Ungir vísindamenn.  Um er að ræða samanburð á árlegum gögnum af sama fjörusniði í Bakkafjöru með það að augnamiði að kanna hvort einhverjar marktækar breytingar eigi eða hafi átt sér stað í fjörunni á síðastliðnum 10-20 árum.
Nemendur þurfa að hafa lokið LÍF113 (vistfræði) og STÆ413 (tölfræði).  Þó kemur til greina að annar nemendanna komi af Félagsfræðibraut og hafi lokið tölfræðinni.  Nemendur verða enn fremur að geta tekið þátt í landskeppninni, sem fram fer í april og ef heppnin er með, að geta tekið þátt íheimskeppninni í september 2010.
Hægt er að meta áfangann sem UMV103 í óbundið val eða sem LÍF303 á líffræðikjörsviði Náttúrufræðibrautar.
Áhugasamir hafi samband við áfangastjóra fyrir októberlok.

8. Drög að próftöflu haustannar 2009


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 9.10.2009

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH