Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Ýmislegt

Bókamarkaður
Nýjar bækur fást í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar en skiptibókamarkaður verður í stofu 6 í dag 6. janúar kl. 13-16.  Eingöngu er hægt að fá skipt bókum, sem eru kenndar á önninni.  Mikilvægt er að nemendur nýti sér þennan opnunartíma.   Bókalista má finna hér.

Meðferð matvæla
 Öll neysla matar og drykkjar er bönnuð í kennslustofum skólans.

Útskriftarnemar!
 Þeir sem hyggja á námslok í vor hafi samband við áfangastjóra sem allra fyrst, hafi þeir ekki gert það á haustönn.

Kennslukerfið Moodle
 Slóðin er kennsluvefur.is, enn fremur er hlekkur á Moodle á fsh.is.
Notendanafn og lykilorð er það sama og á Innu.  Hafið samband við ritara ef þið komist ekki inn.  Kennarar tilkynna nemendum um gögn, sem þeir setja inn á Moodle.

Netaðgangur nemenda
 Nýnemar fá netföng á skrifstofu skólans.
 Verði nemendur uppvísir að misnotkun á tölvukerfi skólans verður aðgangurinn tekinn af þeim.
 Opnunartímar stofu 1 eru þegar hún er ekki í notkun skv. töflu (sjá auglýsingu við stofudyrnar).  Kennarar með hópa hafa þó forgang á opnunartímum fram yfir aðra.
 Eldri nemendur halda sínum netföngum.  Komist einhver ekki inn skal hafa samband við kerfisstjóra.
Ath. að til að nota Innuaðgang verða nemendur að hafa netaðgang!

Notendanöfn og lykilorð nemenda

Notendanafn þitt er búið til samkvæmt eftirfarandi reglu:

Fornafn nemanda ásamt fyrsta staf í föðurnafni skrifað án allra séríslenskra stafa.
þ = th, æ = ae, á = a, ð = d, ö = o, osfv.

Fornafn Millinafn Föðurnafn. Notendanafn er því: fornafnf
Dæmi: Jón Jónsson: Notendanafn yrði því: jonj

Lykilorð allra nýnema er: 12345
Þú þarft að breyta lykilorði þínu þegar þú tengist í fyrsta skipti. Vertu viss um að velja öruggt lykilorð sem þú gleymir ekki. Óöruggt lykilorð er til dæmis: Hluti úr nafni þínu, fæðingardag, kennitölu, fæðingardegi nærstaddra og annað sem augljóslega er hægt að tengja við þig.
Ef þú gleymir lykilorði þínu hafðu samband við kerfisstjóra.

Netfang þitt verður: notendanafn@fsh.is, dæmi: jonj@fsh.is.  Þetta er netfangið sem notað er í Innu og því má ekki breyta!

Heimasvæði þitt er undir “H:” drifi og kvóti verður 50Mb. Vistið gögn ykkar í möppuna “My Documents” eða beint inn á H: drif.

Athugið!
Þegar þú yfirgefur tölvu skalt þú ávallt aftengjast með því að ýta á “Start” hnapp og velja “Log off notandi”.
Tölvustofan er oft mjög umsetin og ekki er leyfilegt að “skreppa” í burtu frá tölvu nema í mjög stuttan tíma. Ef þú kemur að tölvu þar sem enginn situr en einhver er augljóslega tengdur skalt þú gefa viðkomandi nægan tíma til að koma til baka frá salerni (c.a. 2-3 mínútur), vista síðan það sem unnið er með, aftengja viðkomandi og nota tölvuna!

Að lokum
 Vonandi verður samstarfið ánægjulegt í vetur – gangi ykkur vel !

Björgvin R. Leifsson, áfangastjóri, brl@fsh.is


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 6.1.2010 > Ýmislegt

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH